Fotbolti.net
@hafthorbg47Hafþór Bjarki Guðmundsson
Vestri
Vestri
Lengjudeild karla
Olísvöllurinn
Nokkur vindstig og skýjað
1 - 2
Selfoss
Selfoss
Pétur Bjarnason 51'1 - 01 - 156' Gary John Martin1 - 293' Valdimar Jóhannsson
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Myndir: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

SKÝRSLAN: Flautumark réði úrslitum á Ísafirði

Hvað réði úrslitum?

Þetta var mjög jafn og leiðinlegur leikur þar til í lokin. Bæði lið fóru að setja allt sitt í leikinn og þetta endar að sjálfsögðu með marki í seinustu spyrnu leiksins.

Bestu leikmenn

1. Gary Martin

Gary mark og stoðsending special í dag. Ekkert nýtt fyrir hann svosem en hann var virkilega sterkur í sókninni hjá Selfossi. MOTM í dag.

2. Pétur Bjarnason

Pétur var flottur fram á við og varnarlega. Skoraði mark Vestramanna og hélt boltanum vel, hefði getað skorað fleiri en var samt sem áður flottur.

Atvikið

Sigurmarkið, flautumarkið, úrslitamarkið, hvað sem þú vilt kalla það. Engin spurning.

Hvað þýða úrslitin?

Selfyssingar færast nær öryggi og eru núna 5 stigum frá falldæti og 4 stigum frá Aftureldingu í 9. sæti. Vestfirðir gráta í koddan í kvöld og haldast í 7. sæti en þeir hefðu getað komist í það fjórða.

Vondur dagur

Sergine Fall átti ekki góðan leik. Hann átti fínan 15 mínútna kafla í síðari hálfleik en var of oft úr stöðu og missti boltann auðveldlega, gaf einnig vítið í fyrra marki Selfoss. Luke Rae átti heldur ekki góðan leik.

Dómarinn - 5

Arnar dæmdi leikinn ekkert frábærlega. Hefði mátt dæma miklu fleiri spjöld og fleiri brot. Leit út smá lost á köflum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.