Fotbolti.net
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Pepsi-Max deild kvenna
Eimskipsvöllurinn
Frábærar aðstæður, sunshine og nánast logn
Þróttur R.
Þróttur R.
3 - 0
Keflavík
Keflavík
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 1'1 - 0Shea Moyer 47'2 - 0Guðrún Gyða Haralz 88'3 - 0
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson

SKÝRSLAN: Öruggur sigur Þróttar á Keflvíkingum

Hvað réði úrslitum?

Þróttarar byrjuðu leikinn af gríðarlegum krafti og skoruðu strax á fyrstu mínútu leiksins eftir það jafnaðist leikurinn aðeins en Þróttarar fengu fleiri hættulegri færi svo í byrjun síðari hálfleiks tvöfölduðu Þróttarar forskotið og þá var leikurinn í raun búin. Keflvíkingar bættu aðeins í sóknarleikinn undir lokinn en fengu það í bakið í Þróttarar kláruðu leikinn endarlega á 88.mínútu.

Bestu leikmenn

1. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þróttur Reykjavík)

Ólöf átti mjög góðan leik sem fremsti maður Þróttar í dag. Skoraði frábært mark strax á fyrstu mínútu leiksins og var sífelt að ógna að marki Keflavíkur. Lagði svo upp annað markið á Shea Moyer. pp

2. Dani Rhodes (Þróttur Reykjavík)

Dani Rhodes var spræk í kvöld og kom sér í mörg færi og var óheppin að skora ekki nokkur mörk í kvöld. Lagði upp fyrsta markið á Ólöfu Sigríði

Atvikið

Þriðja markið sem gerði út um leikinn. Guðrún Gyða fékk boltann við teiginn og lét vaða og boltinn söng í fjærhornið. Óverjandi fyrir Tiffany.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttarar eru komnir upp í þriðja sæti deildarinnar og er liðið með 18 stig. Keflvíkingar sitja enþá í fallsæti en liðið er áfram með 9.stig

Vondur dagur

Ísabel Jasmín Almarsdóttir - Lenti í slæmri tæklingu um miðjan síðari hálfleik og þurfti að fara útaf og var flutt með sjúkrabíl af vellinum í kvöld. Sendi henni batakveðjur.

Dómarinn - 7.5

Tríóið var flott í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.