SKÝRSLAN: Skagakonur mínútu frá sigri á toppliðinu
Hvað réði úrslitum?
Jafn og spennandi leikur og það voru tvö glæsileg skot utan að velli og góður varnarleikur beggja liða sem réði úrslitum í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Ingibjörg Valgeirsdóttir
Ingibjörg kom í veg fyrir sigur ÍA í kvöld. ÍA konur komust í tvígang einar í gegn á móti Ingibjörgu og gerði hún vel í bæði skiptin og kom í veg fyrir mark. Þá var hún mjög örugg í teignum og átti góðar vörslur.
2. Dana Joy Scheriff
Dana var mjög öflug og lífleg á miðjunni í dag. Byrjaði margar góðar sóknir ÍA og var dugleg á miðjunni og vann marga bolta.
Atvikið
Á 92. mínútu skorar varamaðurinn Kristín Sverrisdóttir stórglæsilegt mark með skoti fyrir utan teig og jafnar leikinn og tryggir KR-ingum stig í dag.
Hvað þýða úrslitin?
ÍA er í harðri botnbaráttu og eru eftir leikinn í 8. sæti með 11 stig en bæði HK, í 9.sæti með 9 stig, og Augnablik, í 10. sæti með 8 stig eiga leik til góða. ÍA á mjög mikilvægan leik í næstu umferð þegar þær mæta HK í fallbaráttuslag.
KR-ingar halda toppsætinu og eru með 29. stig þremur stigum meira en FH sem er í 2. sætinu. KR og FH mætast í næstu umferð og getur KR komið sér í þægilega stöðu með sigri í þeim leik.
Vondur dagur
Sóknarleikur KR var ekki góður í dag. Þær komu sér í ágætar stöður en það vantaði eitthvað upp á síðasta þriðjungi og KR-ingar sköpuðu sér lítið af færum.
Dómarinn - 9
Siggi átti flottann leik í dag, lét leikinn fljóta vel og hélt sinni línu allan leikinn.


