Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pepsi-Max deild kvenna
SaltPay-völlurinn
Þór/KA
Þór/KA
2 - 2
Breiðablik
Breiðablik
0 - 15' Agla María Albertsdóttir Colleen Kennedy 8'1 - 11 - 224' Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir Arna Sif Ásgrímsdóttir 90'2 - 2
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Tvö dýrmæt stig í súginn hjá Breiðablik í kvöld

Hvað réði úrslitum?

Þór/KA áttu gríðarlega góðan leik í síðari hálfleik. Breiðablik var farið að reyna tefja undir lokin, náðu að hanga á boltanum í einhverjar tvær rúmar mínútur í uppbótartíma, þær fengu það svo sannarlega í bakið.

Bestu leikmenn

1. Arna Sif Ásgrímsdóttir

Hún getur brugðið sér í allra kvikinda líki. Stórkostleg. Hún var orðin fremst undir lok leiksins og var hættuleg þar, tryggði Þór/KA stigið síðan á lokasekúndunum.

2. Colleen Kennedy

Kom Þór/KA á blað í leiknum og átti mjög fína spretti.

Atvikið

Það er augljóslega bara síðasta markið í leiknum, flautumark, gríðarlega vont fyrir Blika í toppbaráttunni að fá bara eitt stig hér í kvöld.

Hvað þýða úrslitin?

Vond úrslit fyrir Breiðablik í toppbaráttunni, einu stigi á eftir Val og Valur á leik til góða gegn Fylki á útivelli á föstudaginn. Frábært fyrir Þór/KA að ná stigi gegn Breiðablik. Þær eru í 7. sæti 5 stigum frá fallsæti. Þær eiga Stjörnuna næst úti á föstudaginn eftir viku. Stjarnan situr núna í 3. sæti.

Vondur dagur

Blikar mættu ekki til leiks í síðari hálfleik. Vilhjálmur sagði í viðtali eftir leik það klassíska að þriðja markið hefði klárað leikinn, þær voru ekki mjög líklegar til að ná í það.

Dómarinn - 7

Hann dæmdi ekki neitt nema vitlaus innköst hér í dag. Ekki grófur leikur, ekkert vesen. Ein rangstaða dæmd á Þór/KA sem var eitthvað á mörkunum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.