SKÝRSLAN: Fjölnir blandar sér í toppbaráttuna
Hvað réði úrslitum?
Það að Fjölnismenn voru einum fleirri í 70 mínútur. Þeir náðu ekki að skapa sér nægilega góð færi stóran part leiksins en Grindvíkingar þreyttust og þá komu mörkin 2. Verður að teljast mjög óheppilegt fyrir Grindvíkinga líka að missa Acoff útaf meiddan í fyrri hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölnir)
Jóhann 01 er kominn í gírinn. Hann var allt í öllu, átti þátt í báðum mörkunum og ótalmörg skot þar sem eitt þeirra á 85 mínútu hefði átt að fara inn en Aron Dagur gerði ótrúlega vel að stoppa.
2. Josip Zeba (Grindavík
Það er bara ekki annað hægt en að gefa Grindvíkingum hól fyrir varnarleikinn sinn þrátt fyrir að tapa leiknum og fá á sig 2 mörk. Zeba var að éta sóknarmenn Fjölnis þegar þeir komu í gegn og skalla öllum boltum frá.
Atvikið
Þegar Helgi dæmir ekki rautt á Alexander Frey á 9. mínútu leiks. Bjössi Hreiðars var alveg brjálaður yfir því og ég á voða erfitt með að segja til um hvort þetta hafi verið réttur dómur.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnismenn færa sig upp í 3.sætið með 23 stig en Kórdrengir þó með 2 leiki til góða á þá og bara stigi á eftir.
Grindavík er áfram í 5. sæti og hafa ekki fengið 3 stig í deildinni, 6 leiki í röð.
Vondur dagur
Marinó Axel Helgason (Grindavík)
Þrátt fyrir að Grindvíkingar hafi ekki verið hrifnir af Helga Mikael dómara leiksins í kvöld þá geta þeir ekki mótmælt rauða spjaldinu hans Marinós. Þetta var rosalega klaufalegt hjá honum og eftir þetta varð brekkan sífellt brattari fyrir gestina.
Dómarinn - 8
Ef atvikið á 9.mínútu er réttur dómur þá stenst þessi einkunn. Rosalega erfðiður leikur að dæma en mér fannst Helgi hafa rétt fyrir sér í næstum öllum atvikum. Þó að stuðningsmenn beggja liða verða líkast til ósammála mér.



