Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Samsungvöllurinn
Skýjað og 10-12 gráður og smá gola.
Stjarnan
Stjarnan
4 - 0
ÍA
ÍA
Óttar Bjarni Guðmundsson (sjm) 5'1 - 0Hilmar Árni Halldórsson 24'2 - 0Magnus Anbo Clausen 41'3 - 0Magnus Anbo Clausen 93'4 - 0
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Stjarnan rúllaði yfir Skagamenn á Samsungvellinum í Garðabæ

Hvað réði úrslitum?

Fyrri hálfleikurinn réði þessum leik. Stjörnumenn mættu miklu grimmari til leiks og komust yfir snemma í leiknum. Skagamenn gerðu alltof mikið af mistökum inn á vellinum í kvöld og Stjörnumenn nýttu sér þau og var leikurinn búin eftir 40 mínútur. Síðari hálfleikurinn var rólegur en Stjörnumenn náðu að verja mark sitt og skoruðu fjórða markið undir lokin.

Bestu leikmenn

1. Eggert Aron Guðmundsson (Stjarnan)

Í sínum fyrsta byrjunarliðsleik í kvöld fyrir Stjörnuna. Kom Stjörnunni á bragðið og var frábær sóknarlega í kvöld. Lagði upp þriðja markið á Magnús Anbo með glæsilegri hælspyrnu.

2. Þorsteinn Már Ragnarsson (Stjarnan)

Var að koma liðsfélögum sínum í færi í kvöld á síðasta þriðjung og lagði upp tvö mörk í kvöld.

Atvikið

Fyrsta markið sem opnaði þetta - Þorsteinn Már fékk hann við vítateig Skagamanna og lagði boltann út á Eggert sem keyrði inn á teig og kláraði frábærlega í fjærhornið.

Hvað þýða úrslitin?

Stjörnumenn eru komnir upp í níunda sæti deildarinnar með 16 stig og getur liðið andað aðeins léttar. Skagamenn eru með bakið upp við vegg á botni deildarinnar og þarf liðið á kraftarverki á að halda ef liðið ætlar sér að bjarga sér. Liðið fær HK í algjörum úrslitaleik upp á Skaga á næstkomandi Sunnudag.

Vondur dagur

Miðjan hjá ÍA - Leikurinn tapaðist á miðjunni hjá Skagamönnum í kvöld og mikilvægi Ísaks Snæs sýndi sig í leik Skagamanna í kvöld.

Dómarinn - 7

Sigurður Hjörtur og hans menn voru fínir í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.