SKÝRSLAN: Geggjaðir HK-ingar í bland við ömurlega FH-inga
Hvað réði úrslitum?
HK einfaldlega skapaða sér miklu meira og átti sigurinn skilinn. FH skoraði tvö mörk en skapaði sér þar fyrir utan lítið sem ekkert. HK hefði getað skorað enn fleiri og var nánast rannsóknarefni hvernig HK leiddi bara með einu marki í hléi.
Bestu leikmenn
1. Birnir Snær Ingason
Gjörsamlega frábær og óstöðvandi þegar hann er í þessum gír. Alltaf hættulegur með boltann úti vinstra megin.
2. Arnþór Ari Atlason
AAA var geggjaður í þessum leik eins og allir miðjumenn HK. Bakverðirnir gerðu einnig sterkt tilkall. Mark og frábær stoðsending frá Arnþóri skilar honum í þetta box.
Atvikið
Þriðja mark HK, þegar Birnir Snær kom HK í 3-2. Það var virkilega mikilvægt og virkilega verðskuldað. Aldrei að vita hvernig seinni hálfleikur hefði þróast ef staðan hefði verið jöfn í hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
HK þurfti á þessum sigri að halda þar sem Stjarnan vann sinn leik. Liðið er tveimur stigum frá öruggu sæti og þremur stigum frá áttunda sætinu. FH er er í 6.-8. sæti og þarf að rífa sig aftur í gang.
Vondur dagur
Hörður Ingi Gunnarsson, Eggert Gunnþór Jónsson, Matthías Vilhjálmsson... ég gæti talið áfram.
Hörður Ingi fékk oft á sig tvo úti vinstra megin hjá HK. Jónatan Ingi sýndi það í markinu sínu að hann er tilbúinn að stela nokkrum metrum í varnarvinnunni.
Hörður Ingi fékk oft á sig tvo úti vinstra megin hjá HK. Jónatan Ingi sýndi það í markinu sínu að hann er tilbúinn að stela nokkrum metrum í varnarvinnunni.
Dómarinn - 7
Ég er staddur á sama stað og Davíð Þór (sjá viðtal), skil ekki handar regluna nægilega vel. Mér fannst þetta vera víti á Ívar Örn en dómararnir dæmdu ekkert. Annars fannst mér þessi leikur bara nokkuð vel dæmdur.



