Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Origo völlurinn
Alvöru fótboltaveður. Fánarnir hreyfast ekki, 14 stiga hiti og gengur á með ROSALEGUM skúrum. Þýðir rennblautt gervigras sem skiptir máli.
Valur
Valur
1 - 0
KR
KR
Tryggvi Hrafn Haraldsson 74'1 - 0
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 662
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Iðnaðarsigur meistaranna í slag Reykjavíkurrisanna

Hvað réði úrslitum?

Valsmenn kláruðu færi en KR ekki.

Mjög jafn leikur í gamaldags baráttuleik þar sem öllu máli skipti að nýta færin. Svo auðvitað að standa vörnina. Meistararnir gerðu það og hirtu sigur sem gat lent báðu megin.

Bestu leikmenn

1. Hannes Þór Halldórsson

Landsliðsmarkmaðurinn gerði allt rétt í dag. Yfirvegaður í öllum sínum aðgerðum, það þarf að verja þá bolta sem koma og það gerði Hannes. Tvöfalda varslan hans var matchwinning atriði og hann róaði sína menn niður þegar þurfti í lokin.

2. Kristinn Jónsson

Langbestur KR-inga, áætlunarferðir upp vænginn og dældi boltum inn í teiginn þar sem hans menn náðu ekki að nýta sér stöðurnar.

Atvikið

Áður bent á tvöfalda vörslu Hannesar en lykilmóment leiksins er þegar að Kristján Flóki og Kjartan Henry eru skyndilega tveir einir gegn Hannesi í markteignum.

Flóki valdi að skjóta á markið, beint á Hannes í stað þess að renna boltanum á Kjartan sem hefði ekki getað brennt af. Stuttu síðar skora Valsmenn úr mjög svipaðri stöðu.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn eru komnir með 4ra stiga forystu á toppnum og slíta sig aðeins frá pakkanum.

KR eru áfram í 5.sæti og nú þarf ansi margt að gerast til að Vesturbærinn fái meistaratitil.

Vondur dagur

Sóknarlínan hjá KR náði ekki að nýta sér færin eins og kemur fram í atvikinu og vali á manni leiksins en það vantaði líka pínulítið bara upp á áræðnina á síðasta þriðjungi, taka eitt og eitt langskot og fylgja fast á eftir þeim möguleikum sem gáfust.

Að öðru leyti er hægt að hrósa báðum liðum fyrir bara mjög öflugan fótboltaleik tveggja góðra liða.

Dómarinn - 8,0

Ívar var í stóru hlutverki í kvöld. Það var hasar frá mínútu 1 til mínútu 97 og hann náði fínum tökum á línu sem hann hélt að mestu í gegnum leikinn.

Hann átti þó að spjalda Hauk Pál í fyrri hálfleik og í blálokin var kannski aðeins of mikill flautuleikur í boði. Heilt yfir getur teymið labbað sátt af velli í þrælkrefjandi leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.