SKÝRSLAN: Sannfærandi FH-ingar á toppinn
Hvað réði úrslitum?
FH-liðið var einfaldlega betra liðið í kvöld og sýndi frábæra heildarframmistöðu þar sem hver einasti leikmaður skilaði sínu. Á sama tíma stilltu KR-ingar upp töluvert breyttu liði sem fann aldrei taktinn sinn.
Bestu leikmenn
1. Selma Dögg Björgvinsdóttir
FH-liðið var frábært sem heild í dag og erfitt að gera upp á milli leikmanna. Það er samt mjög auðvelt að hrósa miðjumanninum Selmu Dögg sem er ótrúleg driffjöður á FH-miðjunni og lykill bæði sóknar- og varnarlega.
2. Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir
Vinstri bakvörðurinn hefur slegið í gegn hjá FH í sumar. Er með frábæran vinstri fót sem hún notar óspart til að skapa færi, skora og leggja upp. Hún átti fyrsta mark FH en það kom eftir hornspyrnu hennar. Það var einhver óvissa með það eftir leik hvort boltinn hafi farið af miðverðinum Maggý og inn eða ekki - það breytir engu um frammistöðu Sunnevu sem var geggjuð, sérstaklega í fyrri hálfleik.
Atvikið
Átti Katelin að fá rautt? Markvörður FH elti boltann langt út úr vítateignum sínum og reyndi svo að ná til hans með sólann hátt á lofti. Hún snerti boltann en fór svo af miklum krafti beint í Bergdísi Fanney, leikmann KR. Ekki vendipunktur í leiknum þar sem FH var tveimur mörkum yfir og með góð tök á leiknum en klárlega umdeilt atvik. Bergdís Fanney meiddist sem betur fer ekki illa.
Hvað þýða úrslitin?
FH fer í efsta sæti Lengjudeildarinnar í fyrsta sinn í sumar. Liðið jafnar KR að stigum en er með betri markatölu. Þegar 5 leikir eru eftir stefnir því í rosalega baráttu um sæti í efstu deild að ári. FH og KR eru með 29 stig og Afturelding sem á leik til góða er með 25 stig.
Vondur dagur
Það var lítið að frétta sóknarlega hjá KR. Sóknarlínan var bitlaus og tekur þetta á sig. Liðið saknar klárlega Guðmundu Brynju sem hefur verið þeirra sterkasti sóknarmaður í sumar en verður ekki meira með.
Dómarinn - 5
Það var ekki nógu mikið samræmi í dómgæslunni heilt yfir. KR-ingar eru sérlega ósáttar með tvö atvik. Þær vildu meina að markvörður FH hefði átt að fá rautt og að liðið hefði verið svikið um víti. Á sama tíma fengu FH-ingar tvö spjöld fyrir litlar sakir miðað við ganginn í leiknum og línuna sem hafði verið lögð.



