SKÝRSLAN: Gróttumenn unnu Selfyssinga í hörkuleik
Hvað réði úrslitum?
Grótta bara kláraði færin sín, ekki flóknara en það. Selfoss átti fyrri hálfleikinn og fékk nóg af færum eins og í þeim síðari en ekkert datt.
Bestu leikmenn
1. Kári Daníel Alexandersson
Kári bjargaði Gróttumönnum á köflum og hefði hann ekki verið þarna hefði leikurinn getað farið mikið verr fyrir Gróttu.
2. Arnar Þór Helgason
Addi Bomba var sterkur í dag með mark og flotta varnarvinnu einnig.
Atvikið
Fyrsta mark Gróttu breytti leiknum. Selfoss fór á afturfótinn og Grótta fór að sækja sem þeim héldu áfram að gera í byrjun síðari hálfleiks og skoruðu þar strax.
Hvað þýða úrslitin?
Grótta fer í 6. sæti með 20 stig en þeir eru aðeins 3 stigum frá 3 sæti eftir þennan leik.
Selfoss getur með sigri Þróttar á Kórdrengjum farið í fallsæti. Líkurnar á því eru ekki mjög háar en þó einhverjar en Selfyssingarnir eru í 10. sæti með 12 stig ennþá.
Vondur dagur
Innkoma Arons Darra var ekki góð. Missti boltann oftar en ekki, reyndi oft of mikið og átti til varnarlega að missa menn auðveldlega framhjá sér. Spilaði þó bara 25 mínútur.
Dómarinn - 3
Dómgæslan var svolítið útí hött. Menn voru byrjaðir að gera grín að þessu og hlæja á bekkjunum en hann var þó með nokkur spjöld rétt sem hækkar hann í 3


