SKÝRSLAN: Framarar halda áfram að vinna fótboltaleiki
Hvað réði úrslitum?
Framarar voru heilt yfir sterkari aðilinn í kvöld og stýrðu leiknum mest allan leikinn. Framarar gjörsamlega áttu fyrrihálfleikinn og leiddu 1-0 í hálfleik og hefðu mörkin svo sannarlega getað verið fleiri. Síðari hálfleikurinn var aðeins jafnari en Framarar vörðust vel og kláruðu leikinn með marki undir lokin þegar Fjölnismenn reyndu hvað þeir gátu að finna jöfnunarmarkið.
Bestu leikmenn
1. Aron Þórður Albertsson (Fram)
Frábær inn á miðjunni fyrir framan varnarlínu Fram í kvöld bæði varnarlega og sóknarlega. Dreyfði spili Fram vel og það var mikill kraftur í Aroni í kvöld.
2. Alex Freyr Elísson (Fram)
Var upp og niður hægri vænginn í kvöld og átti nokkrar góðar fyrirgjafir og átti þátt í fyrsta marki Fram.
Atvikið
Fjölnismenn komu boltanum í netið á 65.mínútu þegar Jóhann Árni kom boltanum fyrir eftir aukaspyrnu á miðjum velli og boltinn rataði beint á fjær á Sigurpál Melberg sem kom boltanum í netið en markið dæmt af vegna rangstæðu. Risa atvik!
Hvað þýða úrslitin?
Framarar eru komnir með sjö putta á Pepsí Max-deildar sætið en liðið er komið með níu stiga forskot á ÍBV sem situr í öðru sæti deildarinnar. Fjölnismenn með tapinu í kvöld kveðja toppbaráttuna í bili hið minnsta en liðið situr áfram í þriðja sæti deildarinnar sex stigum á eftir ÍBV.
Vondur dagur
Valdimar Ingi Jónsson (Fjölnir) - Kom inn á sem varamaður þegar klukkutími var búin af leiknum og var sendur í sturtu með tvö gul spjöld undir lok leiksins og er á leiðinni í leikbann.
Dómarinn - 4.5
Línan hjá Aðalbirni var skrítin í kvöld. Dæmdi mark af Fjölnismönnum sem átti líklega að standa.



