SKÝRSLAN: Blautur slagur á Rafholtsvellinum.
Hvað réði úrslitum?
Varnarmistök í öftustu línu Njarðvíkur hleypa Völsungi í gegn og þaðan kemur eina mark leiksins. Blautur og þungur leikur. Alls ekki mikið fyrir augað en Njarðvíkingar reyndu hvað þeir gátu án árangurs að skora á meðan Völsungar héldu í markið sem þeir skora.
Bestu leikmenn
1. Kristófer Leví Sigtryggsson
Átti hreint stórkostlegan leik í marki Völsungs og bjargaði því að Njarðvíkingar kæmust á blað í þrígang í leiknum með frábærum vörslum.
2. Ari Már Andrésson
Var öflugur í liði Njarðvíkur. Traustur á miðjunnu í barningnum þar og færði sig svo í miðvörð þegar Milos fór af velli og leysti það vel.
Atvikið
Mark Völsungs skilur liðin af en slæmur varnarleikur hjá Njarðvík býr það til.
Kristófer Leví var einnig með stórkostlegar markvörslur undir lokinn sem sigldi þessu heim fyrir Völsung.
Kristófer Leví var einnig með stórkostlegar markvörslur undir lokinn sem sigldi þessu heim fyrir Völsung.
Hvað þýða úrslitin?
Þrátt fyrir sigurinn verða Völsungar að sætta sig við 3.sæti í deild sem lokaniðurstaða.
Njarðvíkingar fara svekktir út úr tímabilinu um miðja deild.
Njarðvíkingar fara svekktir út úr tímabilinu um miðja deild.
Vondur dagur
Erfiður leikur og ósanngjarnt að henda einhverjum undir rútuna hérna en sóknarleikur beggja liða var hreint ekki sérstakur.
Dómarinn - 7
Fín tök á leiknum í blautum leik.



