SKÝRSLAN: Til hamingju KV!
Hvað réði úrslitum?
Fyrsta markið fannst mér ráða úrslitum. KV þurfti að vinna í dag og að vera 1-0 yfir þýddi að liðið þurfti ekki að gefa allt í sóknarleikinn. Þróttur reyndi að jafna en tókst það ekki og KV bætti við eftir skyndisókn.
Bestu leikmenn
1. Patryk Hryniewicki
Hélt hreinu og skoraði fyrra markið. Biður ekki um meira í úrslitaleik.
2. Ómar Castaldo Einarsson
Frábær í markinu, verður spennandi að sjá hann í deild ofar.
Atvikið
Lokaflautið. Það var léttir hjá hlutlausum áhorfendum að þurfa ekki að standa lengur í rigningunni og KV gat fagnað sæti í Lengjudeildinni með fullt af stuðningsmönnum.
Hvað þýða úrslitin?
KV er komið upp í næstefstu deild og fer upp um deild í annað sinn á tveimur tímabilum. Þróttur var komið upp fyrir leikinn í dag.
Vondur dagur
Völsungar og þeir sem voru ekki með regnhlíf, litla rigningin.
Dómarinn - 8
Ívar var bara flottur í þessum leik.



