Leik lokið!
90. mín
Rólegt yfir þessi fyrir utan nokkur fín skot. Bæði lið að bíða eftir lokaflautinu!
89. mín
Kristófer Óskar á skot frá vítateigslínunni! Ólafur nær að halda boltanum!
87. mín
Kári Steinn með skot langt fyrir utan teig en það er yfir markið!
85. mín
Már með skot á markið eftir skiptingu frá Jökli. Sindri í marki Aftureldingar heldur boltanum.
84. mín
Birgir með skot í varnarmann eftir skyndisókn og fær hornspyrnu.
82. mín
Gult spjald
Jökull Steinn Ólafsson
80. mín
InnJökull Jörvar Þórhallsson
ÚtElmar Kári Enesson Cogic
80. mín
InnSigurður Kristján Friðriksson
ÚtGísli Martin Sigurðsson
79. mín
Flott spil hjá Fram - Alex með skot í Oskar og fær hornspyrnu.
77. mín
Alexander nálægt því að skora fimmta markið sitt í dag hér! Fær boltann í gegn hægra meginn í teignum en Sindri ver skot hans vel!
75. mín
Flott hornspyrna og Alexander stingur sér á nærstöngina og nær að skalla boltann í netið! Vel gert hjá Alexander en stórt spurningamerki á varnarleik Aftureldingar!
MAAAARK!
Alexander Már Þorláksson (stoðsending: Danny Sean Guthrie)
ALEXANDER MEÐ FERNU!!!Flott hornspyrna og Alexander stingur sér á nærstöngina og nær að skalla boltann í netið! Vel gert hjá Alexander en stórt spurningamerki á varnarleik Aftureldingar!
74. mín
InnJökull Steinn Ólafsson
ÚtAron Þórður Albertsson
74. mín
Guthrie með skemmtilega takta og fær að lokum aukaspyrnu um 25m frá marki.
Hann tekur spyrnuna sjálfur og hún er mjög góð! Sindri með flotta vörslu! Hornspyrnu.
Hann tekur spyrnuna sjálfur og hún er mjög góð! Sindri með flotta vörslu! Hornspyrnu.
71. mín
Ýmir hreinsar fyrirgjöf frá Haraldi. Hornspyrna.
69. mín
InnMár Ægisson
ÚtÞórir Guðjónsson
68. mín
Mark úr víti!
Alexander Már Þorláksson
ÖRUGGUR. SENDIR SINDRA Í VITLAUST HORN!!67. mín
FRAM FÆR VÍTI!!
Klafs í teignum eftir hornið og Alexander er tekinn niður.
Klafs í teignum eftir hornið og Alexander er tekinn niður.
66. mín
Gult spjald
Oskar Wasilewski
Snörp sókn þar sem Oskar brýtur af sér. Leikurinn heldur áfram og fá Framarar hornspyrnu. Oskar fær spjald.65. mín
Afturelding fær hornspyrnu.
63. mín
Hætta við mark Aftureldingar eftir fyrirgjöf frá Haraldi. Sindri nær að kýla boltann burt en búið að flagga rangstöðu á Guðmund.
62. mín
Fínn kraftur í Aftureldingu þessa stundina! Eru að skapa sér ágætis stöður!
61. mín
Ýmir með rosalegt skot sem fer rétt yfir mark Fram! Góð tilraun þarna af 30 m!
58. mín
Fram brunar upp og fær hornspyrnu.
57. mín
Anton og Ólafur Íshólm skella saman eftir að skot frá Hrafn Guðmunds fer í varnarmann og upp í loftið!
Mér sýndist Anton ná skallanum og fá svo Ólaf í sig en dómarinn sér ekkert þarna.
Mér sýndist Anton ná skallanum og fá svo Ólaf í sig en dómarinn sér ekkert þarna.
53. mín
Oskar fær boltann út í breiddina og á skot/fyrirgjöf sem Ólafur Íshólm grípur auðveldlega.
52. mín
InnAlex Freyr Elísson
ÚtÓskar Jónsson
52. mín
Alexander með skalla sem Oskar hreinsar í hornspyrnu.
50. mín
Framarar fá hér aukaspyrnu úti vinstra meginn.
Kyle með skalla framhjá markinu!
Kyle með skalla framhjá markinu!
47. mín
Fram í flottri sókn og enda á fyrirgjöf í Oskar og aftur fyrir. Hornspyrna.
46. mín
InnHrafn Guðmundsson
ÚtArnór Gauti Ragnarsson
46. mín
InnGuðmundur Magnússon
ÚtAlbert Hafsteinsson
46. mín
SEINNI HÁLFLEIKUR ER HAFINN
45. mín
Hálfleikur
Sanngjörn staða í hálfleik. Komum aftur að vörmu spori!
45. mín
Kyle rís manna hæst eftir hornspyrnuna frá Alberti og stangar boltann inn! 4-1!
MAAAARK!
Kyle Douglas McLagan (stoðsending: Albert Hafsteinsson)
FRAM AÐ KLÁRA ÞETTA HÉR Í FYRRI HÁLFLEIK!!Kyle rís manna hæst eftir hornspyrnuna frá Alberti og stangar boltann inn! 4-1!
45. mín
Fram fær hér hornspyrnu á síðustu mínútu fyrri hálfleiks.
45. mín
Alberto brýtur hér á Þórir á miðjum vallarhelming Aftureldingar.
43. mín
Arnor Gauti fær hér aukaspyrnu eftir viðskipti við Kyle í horninu vinstra meginn. Aukaspyrna á hættulegum stað fyrir gestina.
Ýmir á skalla framhjá!
Ýmir á skalla framhjá!
41. mín
InnOskar Wasilewski
ÚtPedro Vazquez Vinas
41. mín
Afturelding í vandræðum með pressuna frá Fram og Alexander í engum vandræðum að skora þarna! Veit ekki alveg hvað Sindri markvörður var að spá.
MAAAARK!
Alexander Már Þorláksson
ALEXANDER MÁR SKORAR HÉR!Afturelding í vandræðum með pressuna frá Fram og Alexander í engum vandræðum að skora þarna! Veit ekki alveg hvað Sindri markvörður var að spá.
40. mín
Albert með fína fyrirgjöf sem Ýmir nær að hreinsa. Hornspyrna.
36. mín
Þórir tók aukaspyrnuna í vegginn og boltinn datt út. Albert fær svo fyrirgjafastöðu og spyrnir boltanum beint á Alexander Már sem klárar vel - sláin inn!!
MAAAARK!
Alexander Már Þorláksson (stoðsending: Albert Hafsteinsson)
FRAM ER KOMIÐ YFIR!!Þórir tók aukaspyrnuna í vegginn og boltinn datt út. Albert fær svo fyrirgjafastöðu og spyrnir boltanum beint á Alexander Már sem klárar vel - sláin inn!!
35. mín
Anton með brot á Aroni Þórði rétt fyrir utan vítateig!
Albert stillir sér upp!
Albert stillir sér upp!
33. mín
Albert fær bolta í gegn og er kominn í góða stöðu en búið að flagga!
32. mín
Búið að vera rólegt eftir jöfnunarmarkið. Fram halda í boltann án þess að skapa.
Afturelding fær hér eina skyndisókn og þar á Kristófer Óskar skot sem fer vel framhjá.
Afturelding fær hér eina skyndisókn og þar á Kristófer Óskar skot sem fer vel framhjá.
25. mín
Albert með fína hornspyrnu sem Afturelding hreinsa út á Hlyn Atla sem tekur boltann á lofti og bombar honum í grasið og inn!!
MAAAARK!
Hlynur Atli Magnússon
FYRIRLIÐINN JAFNAR!!Albert með fína hornspyrnu sem Afturelding hreinsa út á Hlyn Atla sem tekur boltann á lofti og bombar honum í grasið og inn!!
24. mín
FÆRI!!!
Haraldur með fyrirgjöf og Albert er mættur á fjærstöng! Nær skotinu en vel varið hjá Sindra! Fram fær hornspyrnu.
Haraldur með fyrirgjöf og Albert er mættur á fjærstöng! Nær skotinu en vel varið hjá Sindra! Fram fær hornspyrnu.
21. mín
Langur bolti inn í teiginn úr aukaspyrnu, boltinn dettur í stöngina og aftur út. Þar er Arnór Gauti klár og ýtir boltanum yfir línuna! 0-1!!
MAAAARK!
Arnór Gauti Ragnarsson
AFTURELDING TEKUR HÉR FORYSTUNA!!Langur bolti inn í teiginn úr aukaspyrnu, boltinn dettur í stöngina og aftur út. Þar er Arnór Gauti klár og ýtir boltanum yfir línuna! 0-1!!
19. mín
Albert sloppinn í gegn og fær svo Ými aðeins í sig. Albert fer niður en Elías Ingi dómari sér ekkert þarna.
16. mín
Frábær spyrna frá Ými sem fer rétt yfir markið!
15. mín
Arnór Gauti með skemmtilega takta og er svo tekinn niður. Aukaspyrna sem Afturelding á úti hægra meginn.
Taka hana hratt og fá aðra aukaspyrnu á enn betri stað. Um 30m frá marki.
Taka hana hratt og fá aðra aukaspyrnu á enn betri stað. Um 30m frá marki.
14. mín
Fram fær hér aukaspyrnu úti hægra meginn. Brotið á Þórir Guðjóns.
12. mín
Framarar fá hornspyrnu eftir að langur bolti er hreinsaður aftur fyrir.
9. mín
Kári Steinn í ágætis stöðu og á skot en það er í varnarmann Fram.
Afturelding fær að lokum hornspyrnu.
Afturelding fær að lokum hornspyrnu.
8. mín
Löng sending fram og Birgir nær að skalla boltann aftur fyrir. Hornspyrna sem Fram á.
7. mín
Brotið á Indriða Áka þegar hann gerir sig líklegan að keyra í skyndisókn.
6. mín
Nú liggur Arnór Gauti eftir samstuð.
Hann stendur þó upp og heldur leik áfram.
Hann stendur þó upp og heldur leik áfram.
5. mín
Albert á skot á markið en Sindri ver aftur fyrir. Hornspyrna.
4. mín
Indriði fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Rétt fyrir utan teig!
3. mín
Indriði Áki með skalla í átt að marki frá vítateigslínunni eftir að Alberto hafði hreinsað fyrirgjöf! Boltinn í fallegum boga yfir markið.
1. mín
Haraldur Einar liggur hér eftir samstuð við Arnór Gauta. Vonandi er í lagi með hann!
1. mín
Leikur hafinn
Afturelding byrjar með boltann.
Góða skemmtun!
Góða skemmtun!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar!

Arnór Gauti Ragnarsson fyrirliði Aftureldingar.

Arnór Gauti Ragnarsson fyrirliði Aftureldingar.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna í sumar!
Liðin mættust í deildinni þann 9.júlí í Mosfellsbæ og voru það Framarar sem tóku öll stigin. Óskar Jóns og Indriði Áki skoruðu mörkin í 0-2 sigri.

Liðin mættust í deildinni þann 9.júlí í Mosfellsbæ og voru það Framarar sem tóku öll stigin. Óskar Jóns og Indriði Áki skoruðu mörkin í 0-2 sigri.

Fyrir leik
Síðasta umferð
Í síðustu umferð fengu leikmenn Aftureldingar skell gegn Gróttu þar sem leikurinn endaði 8-0 úti á Seltjarnarnesi. Mosfellingar vilja væntanlega enda tímabilið á skemmtilegri hátt.
Fram gerði 2-2 jafntefli við Kórdrengi í dramatískum leik þar sem rauð spjöld fóru á loft og jöfnunarmark Fram kom á síðustu mínútu leiksins. Fram á því enn möguleika á taplausu tímabili sem yrði magnað afrek.
Í síðustu umferð fengu leikmenn Aftureldingar skell gegn Gróttu þar sem leikurinn endaði 8-0 úti á Seltjarnarnesi. Mosfellingar vilja væntanlega enda tímabilið á skemmtilegri hátt.
Fram gerði 2-2 jafntefli við Kórdrengi í dramatískum leik þar sem rauð spjöld fóru á loft og jöfnunarmark Fram kom á síðustu mínútu leiksins. Fram á því enn möguleika á taplausu tímabili sem yrði magnað afrek.
Fyrir leik
Gleðilegan laugardag og verið velkomin á beina textalýsingu frá leik Fram og Aftureldingar í Lengjudeild karla. Síðasta umferð deildarinnar er spiluð í dag en niðurstaðan liggur þó fyrir - Fram og ÍBV fara upp í Pepsi Max en Þróttur og Víkingur Ó kveðja Lengjudeildina og spila í 2.deild á næsta ári.






TIL HAMINGJU FRAM MEÐ ÁRANGURINN Í SUMAR!!
Viðtöl og skýrsla á leiðinni.