Fotbolti.net
Benjamín Þórðarson
Benjamín Þórðarson
Pepsi Max-deild karla
Norðurálsvöllurinn
Flottar aðstæður. Sól, 11 stiga hiti og völlurinn flottur
ÍA
ÍA
5 - 0
Fylkir
Fylkir
12' Þórður Gunnar HafþórssonSteinar Þorsteinsson (víti) 13'1 - 0Hákon Ingi Jónsson 50'2 - 0Jón Gísli Eyland Gíslason 77'3 - 0Ingi Þór Sigurðsson 84'4 - 0Eyþór Aron Wöhler 91'5 - 0
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Leik lokið!
Leiknum er lokið með 5-0 sigri Skagamanna og vonin lifir hjá þeim!
ÍA
91. mín
MAAAARK!

Eyþór Aron Wöhler

Niðurlæging! Raggi Sig með hörmulegan varnarleik og Eyþór sleppur einn í gegn og skorar örugglega!
90. mín
Komnar 90mín á klukkuna og það er tveim mínútum bætt við. Það er ljóst að Skagamenn eru að lyfta sér upp úr fallsæti amk þangað til á morgun þegar HK spilar.
89. mín
Gult spjald á bekkinn hjá Fylki.
88. mín
Skagamenn næstum búnir að skora fimmta markið! Guðmundur Tyrfings með fyrirgjöf en Raggi Sig bjargar á línu.
87. mín
Orri Hrafn við það að prjóna sig í gegnum vörn ÍA en Óttar gerir vel og skýlir boltanum þar til Árni nær til hans
ÍA
84. mín
MAAAARK!

Ingi Þór Sigurðsson (stoðsending: Ísak Snær Þorvaldsson)

Skagamenn að slátra Fylkismönnum hérna! Ísak Snær með sendingu á Inga Sig sem laumar honum í fjærhornið!
ÍA
81. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtViktor Jónsson
81. mín
Fylkismenn með hornspyrnu sem endar með skoti frá Orra en Árni ver vel.
ÍA
78. mín
InnIngi Þór Sigurðsson
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
ÍA
78. mín
InnGuðmundur Tyrfingsson
ÚtSteinar Þorsteinsson
ÍA
78. mín
InnElias Alexander Tamburini
ÚtAron Kristófer Lárusson
ÍA
77. mín
MAAAARK!

Jón Gísli Eyland Gíslason

GAME OVER?? Jón Gísli að koma Skagamönnum í 3-0 og öllum líkindum að klára leikinn! Aron í marki Fylkis í ruglinu, skotið er slakt en hann missir boltann inn!
75. mín
Fylkismenn fá hérna tvær hornspyrnur í röð sem endar með skoti frá Orra en það er framhjá markinu.
71. mín
Gísli Laxdal með skot á mark Fylkis en auðvelt fyrir Aron í markinu.
70. mín
Skagamenn aðeins tæpir hérna að senda boltann á milli í öftustu línu en koma þessu frá á endanum.
Fylkir
62. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtArnór Gauti Jónsson
Fylkir
62. mín
InnBirkir Eyþórsson
ÚtDaði Ólafsson
ÍA
61. mín
InnJón Gísli Eyland Gíslason
ÚtHákon Ingi Jónsson
58. mín
VIKTOR JÓNS!!!! Viktor í dauðafæri í teignum en skotið hrein hörmung og beint á Aron í markinu. Þarna átti hann hreinlega að klára leikinn!
54. mín
Steinar með hörku skot úr þröngu færi en Aron ver virkilega vel.
ÍA
50. mín
MAAAARK!

Hákon Ingi Jónsson (stoðsending: Gísli Laxdal Unnarsson)

ALVÖRU BREKKA FYRIR FYLKI!! Gísli Laxdal vinnur baráttu við Ásgeir á hægri kantinum og kemur boltanum fyrir og Hákon klára virkilega vel!
47. mín
Fylkismenn byrja af krafti. Orri Hrafn labbar í gegnum hálft ÍA liðið en þeir bjarga á endanum.
46. mín
Þá er þetta komið af stað hjá okkur aftur. Nú eru það Skagamenn sem byrja með boltann og sækja í átt að höllini.

Þess má geta að staða í leik Leiknis og Keflavíkur er 0-1 en sá leikur skiptir líka máli í fallbaráttunni.
45. mín
Hálfleikur
Fylkismenn með skalla yfir eftir horspyrnu og Siugður flautar til hálfleiks
41. mín
Það verður að hrósa stuðninsmönnum fyrir mætinguna og hvatninguna á leiknum. Stuðningsmenn beggja liða láta vel í sér heyra.
39. mín
Lítið að gerast þessar mínútur á vellinum. Skagamenn meira með boltann án þess að skapa sér eitthvað.
31. mín
Fyrsta alvöru sókn Fylkis í leiknum. Kemur eftir flott spil en sending fyrir markið og yfir allt og alla og aftur fyrir.
30. mín
Aron Kristófer með horn af verri gerðinni, beint aftur fyrir!
Fylkir
25. mín
InnHelgi Valur Daníelsson
ÚtJordan Brown
Fylkismenn henda í tvöfalda skiptingu hérna og það er ekki hægt að segja að hún sé sóknarsinnuð.
Fylkir
25. mín
InnRagnar Sigurðsson
ÚtUnnar Steinn Ingvarsson
22. mín
Steinar með hörkuskot sem Aron ver vel.
20. mín
Skagamenn mun meira með boltann fyrstu 20 mín leiksins og sérstaklega núna manni fleiri.
ÍA
13. mín
Mark úr víti!

Steinar Þorsteinsson

Steinar öruggur á punktinum og sendir Aron í rangt horn
Fylkir
12. mín
Rautt spjald

Þórður Gunnar Hafþórsson

Mikill darraðadans í teig Fylkis eftir horn og Skagamenn koma boltanum í netið! En Sigurður er búinn að flauta, bendir á punktinn og rekur Þórð útaf fyrir að verja með hendinni viljandi. Alvöru senur í gangi hérna!
9. mín
Skagamenn með horn og Sindri nær skalla en aldrei nein hætta.
7. mín
Fyrsta færið! Hákon Ingi með fyrirgjöf og boltinn á Steinar vítateigslínunni en beint á Aron í markinu.
6. mín
Bæði Ísak og Ásgeir liggja eftir smá skalla samstuð í teig ÍA en þeir hrista þetta af sér. Alvöru menn.
4. mín
Davey fer niður í teig Fylkismanna og einhverjir að biðja um víti en ekkert í þessu. Bara áfram gakk.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er þetta farið af stað hjá okkur og það eru Fylkir sem byrja með boltann og sækja í átt að höllini. Skagamenn að sjálfsögðu í gulum treyjum og svörtum buxum á heimavelli en Fylkismenn eru klæddir í alhvítt. Vonandi fáum við fullt af mörkum og mikið fjör!
Fyrir leik
Það eru um 10 mínútur í leik hjá okkur og liðin farin upp í klefa í loka pepp fyrir leikinn! Ekki laust við að það sé mikil spenna á vellinum
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár. Bæði þessi lið voru að spila í átta-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í síðustu viku. ÍA vann 3-1 sigur á ÍR. Frá þeim leik gerir Jóhannes Karl Guðjónsson fjórar breytingar. Þórður Þorsteinn Þórðarson, sem skoraði frábært mark gegn ÍR, er ekki með í dag. Wout Droste, Sindri Snær Magnússon, Viktor Jónsson og Steinar Þorsteinsson koma inn í liðið fyrir Þórð, Ólaf Val Valdimarsson, Brynjar Snæ Pálsson og Eyþór Aron Wöhler.

Ragnar Sigurðsson hefur verið frá vegna meiðsla hjá Fylki en hann byrjar á bekknum. Rúnar Páll Sigmundsson stillir upp sama liði og gegn Víkingi. Sá leikur fór í framlengingu þar sem Víkingar höfðu betur.
Fyrir leik
Dómari í dag er Sigurður Hjörtur Þrastarson og honum til aðstoðar eru Eðvarð Eðvarðsson og Sveinn Þórður Þórðarson. Varadómari er Gunnar Oddur Hafliðason. Þórður Ingi Guðjónsson ætlar svo að hafa eftirlit með þessum eðal mönnum.
Fyrir leik
Þess má til gamans geta að liðin hafa mæst 51 sinni í leikjum á vegum KSÍ og þar hefur Skaginn vinninnginn. Skagamenn hafa unnið 23 leiki, Fylkir hefur unnir 14 leiki og 14 sinnum hafa liðið gert jafntefli. Þá hafa Skagamenn skorað 89 mörk rn Fylkismenn 71 í þessum leikjum!
Fyrir leik
Skagamenn koma inní þennan leik með tvo sigra í röð en þeir unnu Leikni í síðasta deildarleik og svo slógu þeir ÍR út úr bikarnum. Gestirnir koma hins vegar með 5 töp í röð á bakinu. Þeir töpuðu síðasta deildarleik fyrir KA og fyrir Víking R. í bikarnum í síðasta leik.

Þetta hins vegar breytir ekki miklu ef einhverju þegar leikurinn byrjar. Þetta ætti að verða hörku leikur og mikil barátta, annað væru vonbrigði
Fyrir leik
Staðan er ekki mjög flókin fyrir þennan leik, bæði lið þurfa nauðsynlega sigur. Tap hjá heimamönnum í ÍA og ef Keflavík nær í stig á móti Leikni þýðir að Skaginn er fallinn. Sigur aftur á móti kemur þeim úr fallsæti amk þangað til á morgun þegar HK spilar.

Staðan er ekki ósvipuð hjá Fylkismönnum. Tap þýðir að þeir sitja á botninum fyrir lokaumferðina en þeir geta samt þá ennþá bjargað sér. Og með sigri þá lyfta þeir sér úr fallsæti amk tímabundið eins og Skaginn!
Fyrir leik
Það er enginn smá leikur sem við erum að fara að fylgjast með. Bæði lið eru í bullandi fallbaráttu en liðin sitja í tveimur neðstu sætunum, ÍA í tólfta sæti og Fylkir í því ellefta með stigi meira.
Fyrir leik
Heilir og sælir lesendur góðir og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik ÍA og Fylkis á Norðurálsvellinum á Akranesi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.