Fotbolti.net
Besta deildin
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Eins og þær gerast bestar!
Stjarnan
Stjarnan
2 - 2
ÍA
ÍA
0 - 118' Gísli Laxdal UnnarssonJóhann Árni Gunnarsson 47'1 - 1Óskar Örn Hauksson 67'2 - 12 - 288' Kaj Leo Í Bartalstovu
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Fyrsta jafntefli Bestu deildarinnar árið 2022

Hvað réði úrslitum?

Viljinn hjá Skagamönnum til að jafna leikinn undir lokin skilaði ÍA marki undir lok leiks. Eftir jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik tóku Stjörnumenn yfir leikinn fram að 85 mínútu þegar Skaginn fór að sækja af miklum krafti og það skilaði inn marki og jafntefli niðurstaðan.

Bestu leikmenn

1. Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)

Jóhann Árni var að mínu mati besti maður vallarins. Var mikið í boltanum og skoraði jöfnunarmark Stjörnunnar í byrjun síðari hálfleiks.

2. Óli Valur Ómarsson (Stjarnan)

Var frábær í hægri bakverði Stjörnunnar í kvöld og var upp og niður mest allan leikinn. Lagði upp markið á Jóhann Árna eftir frábæran samleik hægra megin á vellinum.

Atvikið

Jöfnunarmarkið hjá Kaj Leo undir lokin - Fékk langan bolta frá vinstri alla leið yfir til hægri á fjær og kláraði vel framhjá Haraldi Björnssyni í marki Stjörnunnar

Hvað þýða úrslitin?

2-2 jafntefli sem þýðir að bæði lið byrja mótið á einum punkti á töfluna.

Vondur dagur

Alex Davey (ÍA) Var mjög góður í leiknum og lagði meðal annars upp markið á Gísla Laxdal sem kom liðinu yfir en hann fær þennan glugga fyrir meiðslin sem hann lenti í byrjun síðari hálfleiks og óska ég honum góðs bata, þetta leit alls ekki vel út!

Dómarinn - 8.5

Helgi Mikael og hans menn voru með góð völd á leiknum í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.