Fotbolti.net
Besta deildin
@arnardadiArnar Daði Arnarsson
Arnar Daði Arnarsson
Besta-deild karla
Origo völlurinn
Frábærar
Valur
Valur
2 - 1
ÍBV
ÍBV
Guðmundur Andri Tryggvason 9'1 - 01 - 115' Sigurður Arnar Magnússon Arnór Smárason 81'2 - 1
Dómari: Þorvaldur Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Hundfúll varamaður tryggði Val stigin þrjú

Hvað réði úrslitum?

Ætli gæðin á sóknarþriðjungi Valsmanna hafi ekki skilað þeim þessum sigri. Valur fékk nokkur tækifæri til að skora annað markið, rétt áður en Arnór Smárason gerði það sem Heimir Guðjónsson þjálfari Vals beið eftir.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Andri Tryggvason

Skoraði fyrsta markið og lagði upp sigurmarkið. Fékk tækifæri til að skora fleiri en brást bogalistin.

2. Birkir Már Sævarsson

Alltaf sama gamla dísel vélin. Traustur, áræðinn og kraftur í hægri bakverðinum. Ekkert rugl og engir stælar.

Atvikið

Arnór Smárason kom inná sem varamaður á 69. mínútu leiksins og var búinn að koma Valsmönnum yfir í leiknum rúmlega tíu mínútum síðar sem reyndist sigurmarkið. Arnór var gagnrýndur fyrir sína spilamennsku ásamt öðrum liðsfélögum hans í Val á síðasta tímabili. Þetta mark vonandi kveikir í Arnóri sem samkvæmt Heimi Guðjónssyni var allt annað en sáttur að hafa byrjað á bekknum í þessum leik.

Hvað þýða úrslitin?

Valur er komið með þrjú stig á töfluna á meðan ÍBV þarf að bíða fram í næstu umferð til að sækja sín fyrstu stig í Bestu deildinni.

Vondur dagur

Heimir Guðjónsson staðfesti í viðtali eftir leik að Orri Sigurður Ómarsson sé með slitið krossband. Það eru gríðarlega slæm tíðindi bæði fyrir Val og að sjálfsögðu Orra sjálfan sem missir þar af leiðandi af öllu tímabilinu.

Dómarinn - 8,2

Hörkuleikur, mikið fjör en Þorvaldur gerði þetta vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.