Fotbolti.net
Besta deildin
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
4 - 5
Stjarnan
Stjarnan
Nikolaj Andreas Hansen 3'1 - 01 - 119' Emil Atlason1 - 227' Adolf Daði Birgisson1 - 329' Emil AtlasonKristall Máni Ingason 33'2 - 32 - 464' Eggert Aron GuðmundssonKristall Máni Ingason (víti) 68'3 - 43 - 574' Emil AtlasonKristall Máni Ingason 80'4 - 5
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Stórkostlegum leik lokið! Þvílík skemmtun!
Fullt af mörkum!
Stjarnan
95. mín
Gult spjald

Adolf Daði Birgisson

94. mín
Háloftabolti þessa stundina.
93. mín
Viktor Örlygur með skot sem svífur rétt yfir samskeytin!
Stjarnan
93. mín
InnOliver Haurits
ÚtEmil Atlason
Heiðursskipting!
91. mín
Fáum +5!
89. mín
Ísak Andri með skot í stöngina!
Stjarnan
87. mín
InnBrynjar Gauti Guðjónsson
ÚtDaníel Laxdal
87. mín
Kristall Máni er kominn útfyrir völlinn og virðist klár í að koma inná aftur.
Daníel Laxdal hinsvegar borinn útaf á börum. Óskum honum skjóts bata.
85. mín
Kristall Máni og Daníel Laxdal skella saman. Verið að huga að þeim báðum.
Stjarnan
84. mín
Gult spjald

Óli Valur Ómarsson

Of lengi að taka innkast.
82. mín
Viktor Örlygur með aukaspyrnu inn á teig og léttur Pickford í Halla þarna en fékk smá högg.
Víkingur R.
80. mín
MAAAARK!

Kristall Máni Ingason

ÖNNUR ÞRENNA!!
Viktor Örlygur með frábæra spyrnu sem smellur í slánni og Kristall Máni nær fyrstur á boltann og skallar hann inn! Ekki sannfærandi skalli en inn fór hann!
Víkingur R.
80. mín
InnKyle Douglas Mc Lagan
ÚtHalldór Smári Sigurðsson
79. mín
Daníel Laxdal dæmdur brotlegur og Víkingar fá aukaspyrnu á flottum stað.
Víkingur R.
75. mín
InnLogi Tómasson
ÚtDavíð Örn Atlason
Stjarnan
74. mín
MAAAARK!

Emil Atlason (stoðsending: Óli Valur Ómarsson)

ÞRENNA!

HVAÐ ER AÐ ÞESSUM LEIK!?!?
Emil Atlason með þrennu!! Það er við hæfi að hann klárar þrennuna með skallamarki!
Frábær fyrirgjöf frá Óla Val fyrir markið sem Emil Atlason skallar inn á fjær!
70. mín
Emil Atlason vinnusamur og kemur boltanum fyrir í átt að Eggert Aroni sem fellur í vistarskiptum við Júlíus í teignum. Ekkert dæmt.
Víkingur R.
68. mín
Mark úr víti!

Kristall Máni Ingason (stoðsending: Ari Sigurpálsson)

MARK!

Kristall Máni svellkaldur og setur boltann í hægra hornið.
Stjarnan
67. mín
Gult spjald

Elís Rafn Björnsson

67. mín
VÍKINGAR FÁ VÍTI!!
Brotið á Ara!
Víkingur R.
65. mín
InnAri Sigurpálsson
ÚtNikolaj Andreas Hansen
Víkingur R.
65. mín
InnHelgi Guðjónsson
ÚtBirnir Snær Ingason
Stjarnan
64. mín
MAAAARK!

Eggert Aron Guðmundsson (stoðsending: Óli Valur Ómarsson)

MAARK!

Stjörnumenn komast aftur í tveggja marka forystu! Óli Valur með flotta sendingum sem flýtur í gegnum pakkan á Eggert Aron sem setur hann á milli fóta Ingvars í marki Víkings.
61. mín
Adolf Daði kemst í ákjósanlega stöðu en tekur aukasnertingu og þrengir færið og á endanum ver Ingvar.
Hefði mögulega átt að sjá Emil Atla sem var fyrir miðju marki.
59. mín
Víkingar hafa verið að komast ofar á völlinn.
Stjarnan
57. mín
InnElís Rafn Björnsson
ÚtÞórarinn Ingi Valdimarsson
Stjarnan
57. mín
InnEggert Aron Guðmundsson
ÚtEinar Karl Ingvarsson
56. mín
Stjörnumenn hafa byrjað þennan síðari hálfleik betur.
55. mín
Einar Karl með þrumuskot sem fer rétt yfir.
52. mín
Stjörnumenn þjarma að Víkingum en Víkingar ná að lokum að koma boltanum frá.
51. mín
Ísak Andri með flottan sprett. Pikkar boltanum framhjá Ekroth og keyrir svo inn á teig og á skot sem Víkingar ná að koma í horn.
49. mín
Víkingar með fysta horn síðari hálfleiks. Kemur hinsvegar lítið úr því
Stjarnan
48. mín
Gult spjald

Einar Karl Ingvarsson

Rífur Birnir Snær niður.
46. mín
Viktor Örlygur sparkar seinni hálfleikinn í gang.
Stjarnan
46. mín
InnÓlafur Karl Finsen
ÚtÓskar Örn Hauksson
45. mín
Hálfleikur
+1

Stórkostlegur fyrri hálfleikur að baki.
45. mín
Fáum +1 í þennan fyrri hálfleik.
43. mín
Nikolaj Hansen skorar eftir frábæran undirbúning en flaggið fór á loft!
39. mín
Viktor Örlygur með frábært skot í slánna.
38. mín
DAVÍÐ ÖRN ATLASON!!
Sá fékk færi til að jafna leikinn! Erlingur með fyrirgjöf inn á teig sem Kristall Máni nær með bakið í markið og boltinn berst á Davíð Örn sem er ekki mikið meira en örfáum metrum frá opnu marki en hamrar boltanum yfir markið! Væri til í að sjá xG tölfræðina á bakvið þetta færi!
37. mín
Birnir Snær með skot að marki sem Halli ver vel.
35. mín
Stjörnumenn að komast í flott færi, Daníel Laxdal kemur boltanum á Adolf sem kemur boltanum fyrir markið en Víkingar bjarga í horn.
Víkingur R.
33. mín
MAAAARK!

Kristall Máni Ingason

HVAÐA ÞVÆLA ER ÞETTA!?

Víkingar minnka muninn! Kristall Máni átti upphafið af þessari sókn. Halli gerir frábærlega í að verja skot frá að mér sýndist Erlingi og það er klafs í teignum en á endanum er það Kristall sem klárar þetta!
Stjarnan
29. mín
MAAAARK!

Emil Atlason (stoðsending: Einar Karl Ingvarsson)

MAARK!!

Stjörnumenn tvöfalda forystu sína!
Víkingar vildu fá víti þegar Kristall Máni féll í teignum eftir vistarskipti við Óla Val. Einari Karli var alveg sama hvað Víkingar vildu og sá að Emil Atla var lagður af stað fram og þræddi boltann á Emil Atlason sem keyrði bara í átt að marki og skoraði.
Stjarnan
27. mín
MAAAARK!

Adolf Daði Birgisson (stoðsending: Ísak Andri Sigurgeirsson)

MAARK!

Stjörnumenn komast yfir!
Ísak Andri með frábæra sendingu niðri með jörðinni fyrir mark Stjörnumanna sem Adolf Daði nær að vera fyrstur á og skófla yfir línuna!
21. mín
Þórarinn Ingi dæmdur brotlegur fyrir brot á Kristali Mána en sleppur þó við spjald.
Stjarnan
19. mín
MAAAARK!

Emil Atlason (stoðsending: Adolf Daði Birgisson)

MAARK!

Stjörnumenn jafna!
Óskar Örn þræðir Adolf Daða í gegnum nálarauga sem setur hann svo fastan fyrir á Emil Atla sem hamrar boltann inn!
18. mín
Stjörnumenn að reyna svipaða hornspyrnu taktík og Skagamenn voru að vinna með gegn gegn Víkingum með góðum árangri en Ingvar nær að blaka boltanum frá.
16. mín
Stjörnumenn aðeins að færa sig framar. Fá hornspyrnu eftir kraftmikinn sprett frá Óla Val.
13. mín
Víkingar eru með öll völd þessar upphafsmínútur.
8. mín
Ingvar virðist hafa meitt sig í þessu brasi rétt áðan því hann þarf að fá aðhlýningu og er í brasi með hendina virðist vera.
7. mín
Ingvar Jónsson í smá brasi með fyrirgjöf og hálf missir hann en blessunarlega fyrir hann dettur boltinn á ofan á þaknetið.
5. mín
Víkingar byrja þennan leik af krafti og eru ekki langt frá því að bæta við strax! Kristall Máni kemst í gott færi og á skot sem Halli ver vel og boltinn fer út í teig þar sem Birnir Snær kemur en skóflar boltanum yfir.
Víkingur R.
3. mín
MAAAARK!

Nikolaj Andreas Hansen (stoðsending: Birnir Snær Ingason)

MAAARK!

Það eru heimamenn í Víking sem taka forystuna! Frábær fyrirgjöf frá Birni Snær frá vinstri beint á kollinn á Nikolaj Hansen!
1. mín
Það er Óskar Örn sem á upphafssparkið í kvöld.
Fyrir leik
Þetta er að bresta á og allt að verða klárt! Liðin mætt út á völl og taka snöggan loka liðsfund fyrir komandi átök.
Fyrir leik
Arnar Gunnlaugsson er með óbreytt lið frá 4-1 sigri liðsins á Keflavík á dögunum.
Hann sá enga ástæðu til að breyta sigurformúlunni en Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, gerir tvær breytingar. Einar Karl Ingvarsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson koma inn fyrir Elís Rafn Björnsson og Björn Berg Bryde.
Fyrir leik
Dómarar

Það fellur í hlut Ívars Orra Kristjánssonar að munda flautuna í kvöld og honum til aðstoðar verða þeir Eðvarð Eðvarðsson og Antoníus Bjarki Halldórsson.
Jóhann Ingi Jónsson verður á skiltinu og þá verður það Gunnar Jarl Jónsson sem sér til þess að allt fari sómasamlega fram.


Fyrir leik
Við skulum skoða tölfræðiþætti liðana fyrir þessa þriðju umferð.

Víkingur R
Sæti:4
Leikir:3
Sigrar:2
Jafntefli:0
Töp:1
Mörk skoruð:6
Mörk fengin á sig:5
Markatala:+1

Markahæstir:
Nikolaj Hansen - 1 Mark
Kristall Máni Ingason - 1 Mark
Júlíus Magnússon - 1 mark
Helgi Guðjónsson - 1 Mark
Birnir Snær Ingason - 1 Mark
Ari Sigurpálsson - 1 Mark


Fyrir leik
Við skulum skoða tölfræðiþætti liðana fyrir þessa þriðju umferð.

Stjarnan
Sæti:6
Leikir:2
Sigrar:1
Jafntefli:1
Töp:0
Mörk skoruð:5
Mörk fengin á sig:2
Markatala:+3

Markahæstir:
Jóhann Árni Gunnarsson - 2 Mörk
Óskar Örn Hauksson - 1 Mark
Emil Atlason - 1 Mark
Adolf Daði Birgisson - 1 Mark


Fyrir leik
Heimamenn í Víking eru að fara í sinn fjórða leik á tímabilinu. Þeir byrjuðu á að fá FH í heimsókn í opnunarleik mótsins þar sem Víkingar höfðu betur 2-1.
Þeir fóru svo á skagann þar sem þeir fengu slæma útreið gegn ÍA sem kjöldrógu Víkinga og sigruðu 3-0.
Víkingar fengu svo Keflvíkinga í heimsókn á fimmtdaginn sl. þegar þeir þjófstörtuðu 10.umferð og gjörsigruðu suðurnesjamennina 4-1.

Stjörnumenn hafa farið vel af stað.
Þeir gerðu jafntefli við Skagamenn í fyrstu umferð 2-2 og gerðu svo góða ferð í Breiðholtið þar sem þeir fóru með sannfærandi sigur gegn Leiknismönnum 0-3.
Fyrir leik
Komið margblessuð og sæl og verið hjartanlega velkominn í þráðbeina textalýsingu beint úr víkinni þar sem heimamenn í Víkingi R fá Garðbæingana í Stjörnunni í heimsókn á heimavöll hamingjunar.



Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.