Fotbolti.net
Besta deildin
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Besta-deild karla
Framvöllur
Fram
Fram
1 - 1
ÍA
ÍA
Guðmundur Magnússon 22'1 - 01 - 142' Eyþór Aron Wöhler
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 587
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Niðurstaðan jafntefli í tilþrifalitlum leik Fram og ÍA

Hvað réði úrslitum?

Einfalt. Hvorugt lið náði að brjótast í gegn og skapa sér nægilega hættuleg færi til þess að komast yfir í leiknum.

Bæði lið voru þétt fyrir en buðu ekki upp á mikla skemmtun.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Magnússon

Skoraði mark Fram og var öflugur í að leiða línuna.

2. Kaj Leo Í Bartalstovu

Ógnaði yfirleitt þegar hann fékk boltann.

Atvikið

Mark Skagamanna var skrautlegt. Skalli að marki Fram sem Ólafur Íshólm sendi út úr markinu. Úr blaðamannastúku virtist boltinn ekki inni en mark var dæmt og Frammarar mótmæltu ekki og Skagamenn fögnuðu.

Hvað þýða úrslitin?

Fram eru taplausir í Maí og komnir með sitt fyrsta stig í ellefta sæti. Skagamenn eru enn taplausir í Bestu deildinni og sitja í 6. sæti með 5 stig

Vondur dagur

Enginn sem á þessa nafnbót skilið. Kannski einna helst sóknir beggja liða að ná ekki að skapa sér nægilega hættuleg færi

Dómarinn - 7

Solid sjöa
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.