Fotbolti.net
Besta deildin
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Besta-deild karla
Framvöllur
Fram
Fram
1 - 1
ÍA
ÍA
Guðmundur Magnússon 22'1 - 01 - 142' Eyþór Aron Wöhler
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 587
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
+6

Leik lokið. Jafntefli niðurstaðan. Viðtöl og umfjöllun á leiðinni
90. mín
+3

Þetta er að renna út. Stefnir í jafntefli.
90. mín
6 mínútum bætt við.
ÍA
89. mín
InnHallur Flosason
ÚtBrynjar Snær Pálsson
ÍA
89. mín
InnBreki Þór Hermannsson
ÚtBenedikt V. Warén
ÍA
88. mín
Gult spjald

Hlynur Sævar Jónsson

Fyrir ansi sterka tæklingu.
87. mín
Gísli Laxdal með þrusu skot að marki sem fór framhjá en hefði ekki skipt máli, hann var úrskurðaður rangstæður.
Fram
83. mín
InnOrri Gunnarsson
ÚtAlex Freyr Elísson
Fram
83. mín
InnAlexander Már Þorláksson
ÚtJannik Holmsgaard
80. mín
Alex Freyr liggur eftir hér upp við hornfána Skagamanna og kveinkar sér mikið. Virtist hafa stigið eitthvað vitlaust niður.
78. mín
Ólafur er stðainn á fætur eftir aðhlynningu.
78. mín
Ólafur Íshólm liggur eftir og sjúkraþjálfarinn er kominn inn á. Sá ekki hvað gerðist.
77. mín
Skagamenn reyna að þrýsta Frömmurum aftar á völlinn. En það er hreinlega bara ekkert að gerast í þessum leik.
ÍA
75. mín
InnGuðmundur Tyrfingsson
ÚtEyþór Aron Wöhler
Markaskorarinn af velli fyrir Skagamenn
74. mín
Skagamenn með þolinmóða uppbyggingu í sóknarleiknum. Spiluðu boltunum vel á milli sín, Kaj lagði hann svo upp í horn á vítateig Fram en sendingin of laus og sóknin rann út í sandinn. Fyrsta markverða sem ÍA gerir í seinni hálfleik.
Fram
68. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtFrederico Bello Saraiva
65. mín
Fátt um fína drætti það sem af er.
Fram
63. mín
InnTryggvi Snær Geirsson
ÚtÞórir Guðjónsson
Fram
61. mín
Gult spjald

Frederico Bello Saraiva

Fyrir nett hálstak á Köhler
56. mín
Það er engin lygi þegar ég held því fram að mark Fram liggur soldið í loftinu núna. Skagamenn eru samt þéttir fyrir og koma í veg fyrir að sóknir Frammara verði hættulegar.
52. mín
Fred geystist upp völlinn og var nærri því búinn að stinga síðasta varnarmann skagamanna, Jón Gísla af en krafturinn í Fred var ekki nægur.
49. mín
Framarar byrja seinni hálfleikinn af krafti og pressa Skagamenn duglega hér í byrjun.
46. mín
Heimamenn byrja með boltann og sá seinni er hafinn! Let´s go!
45. mín
Hálfleikur
Liðin eru komin aftur inn á völlinn. Seinni hálfleikur við það að hefjast.
45. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur.

Jöfnunarmarkið lá í loftinu. Skagamenn voru búnir að liggja ansi mikið á Frömurum og enn eitt markið úr föstu leikatriði hjá Skagamönnum. Seinni hálfleikur verður fróðlegur.
ÍA
45. mín
Gult spjald

Kaj Leo Í Bartalstovu

ÍA
42. mín
MAAAARK!

Eyþór Aron Wöhler (stoðsending: Kaj Leo Í Bartalstovu)



JAHÉRNA HÉR

MARK!! Kaj Leó með hornspyrnu, boltinn dettur fyrir Whöler sem skallar hann í átt að marki, en boltanum er skotið í burtu úr markinu, hann sýndist ekki vera inni en Elías Ingi dæmdi mark.

Framarar mótmæltu ekki dómnum og Skagamenn fögnuðu en séð úr blaðamannastúku var þetta tæpt.
39. mín
Albert með skot í átt að marki ÍA en það var laust og Árni átti ekki vandræðum með að grípa boltann.
34. mín
Skagamenn reyna án afláts að ógna marki Fram. Gísli Laxdal og Kaj Leó eru soldið allt í öllu í leik skagamanna.
32. mín
Framarar taka þetta mark og leggjast aðeins og leyfa Skagamönnum að sækja á sig. Skagamenn eru meira með boltann og spila stutt á milli sín en ná ekki að ógna markinu.
29. mín
Minni þá sem eru á Twitter á sama tíma og þeir njóta leiksins að nota myllumerkið #fotboltinet þegar tíst er um leikinn.
24. mín
Skagamenn voru virkilega ósáttir við markið, töldu að um rangstöðu væri að ræða en Elías Ingi og aðstoðardómarar voru vissir í sinnni sök
Fram
22. mín
MAAAARK!

Guðmundur Magnússon (stoðsending: Albert Hafsteinsson)

Sending innn í teiginn og Guðmundur var á auðum sjó og renndi boltanum framhjá Árna Snæ í markinu.
21. mín
Jón Gísli með skot hátt yfir markið.
18. mín
Gísli Laxdal í góðu færi í teignum en frábær markvarsla hjá Ólafi Íshólm.
16. mín
Fred með skot í varnarmann og yfir mark ÍA. Hornspyrna sem Framarar fá.
15. mín
Uppstillingin er sirka svona

Fram:
Ólafur
Alex - Tshiembe - Þórir - Már
Hlynur - Indriði - Albert
Guðmundur - Jannik -Fred

ÍA
Árni
Jón Gísli - Aron Bjarki - Hlynur - Vall
Brynjar - Benedikt - Eyþór
Kaj Leó - Eyþór - Gísli Laxdal
12. mín
Gíxli Laxdal gerði sig líklegan á hröðum spretti upp vinstri kantinn en frábær tækling hján Alex Fery sem hirti af honum boltann.
5. mín
Alex með skot hátt yfir mark skagamanna.
2. mín
Þórir Guðjónsson spilar í miri vörn Framara að þessu sinni.
1. mín
Leikur hafinn
Skagamenn byrja með boltann og leika í átt að félagsheimilinu.

Markmannsbúningur Ólafs Íshólm markmanns Fram vekur athygli, þverröndóttur rauður og hvítur eins og aðalbúningur HK.
Fyrir leik
Liðin eru komin út á völl. Framarar að venju í bláum treyjum og hvítum buxum og skagamenn í gulum treyjum og svörtum buxum.
Fyrir leik
Tíu mínútur í leik og liðin eru komin inn í klefa í lokaundirbúning með þjálfurunum. Farið að þéttast vel í stúkunni.
Fyrir leik
Jón Sveinsson þjálfari Fram gerir þrjár breytingar á liði sínu frá 4 - 2 tapi gegn FH í síðustu umferð. Gunnar Gunnarsson, Alexander Már Þorláksson og Tryggvi Snær Geirsson fara út fyrir þá Þórir Guðjónsson, Jannik Holmsgaard og Indriða Áka Þorláksson.

Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA gerir tvær breytingar á liði sínu frá 3 - 0 sigrinum gegn Víkingum. Oliver Stefánsson og Steinar Þorsteinsson fara út en þeir Benedikt Waren og Brynjar Snær Pálsson koma inn.
Fyrir leik
Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA fagnar 44 ára afmælisdegi sínum í dag. Til hamingju með daginn!
Fyrir leik
Það er ekki bara fótboltinn sem fólk getur verið spennt fyrir í Safamýrinni í kvöld því stuðningsmannahópur ÍA hefur verið frábær í byrjun tímabilsins, rétt eins og í lokin í fyrra. Það verður gaman að fylgjast með þeim með sixpensarana í stúkunni.
Fyrir leik
Fram hefur tapað báðum leikjum sínum í Bestu-deildinni til þessa. Þeir töpuðu heima gegn KR 1 - 4 í fyrstu umferðinni og í síðustu viku töpuðu þeir 4 - 2 úti gegn FH.

Skagamenn hafa byrjað mun betur. Þeir gerðu jafntefli í Garðabænum gegn Stjörnunni í fyrstu umferðinni, 2 - 2. Í annarri umferðinni unnu þeir 3 - 0 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Víkings en þá var leikið á Akranesi.
Fyrir leik
Elías Ingi Árnason dæmir leikinn í dag og er með þá Odd Helga Guðmundsson og Berg Daða Ágústsson sér til aðstoðar á línunum. Helgi Mikael Jónasson er skiltadómari og KSÍ sendir Sigurð Hannesson sem eftirlitsmann sem fylgist með umgjörð og störfum dómara.
Elías Ingi Árnason dæmir í dag.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Fram og ÍA í Bestu deild karla.

Leikurinn hefst 19:15 á Framvellinum í Safamýri.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.