Fotbolti.net
@DjammsiDaníel Már Aðalsteinsson
Lengjudeild karla
Extra völlurinn
Sturlaðar. Heiðskýrt og sólin skín í 112.
Fjölnir
Fjölnir
4 - 1
Þór
Þór
Andri Freyr Jónasson 26'1 - 0Andri Freyr Jónasson 40'2 - 0Hákon Ingi Jónsson (víti) 53'3 - 03 - 187' Harley Bryn WillardHákon Ingi Jónsson 88'4 - 1
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Sannfærandi hjá Fjölni á Extravellinumí kvöld.

Hvað réði úrslitum?

Kraftur Fjölnismanna var of mikill fyrir Þórsliðið sem fann sig ekki í leiknum og voru skrefi á eftir Fjölnismönnum, föst leikatriði Fjölnismanna voru hættuleg og sköpuðu fyrstu 2 mörkin.

Bestu leikmenn

1. Andri Freyr Jónasson

Var mjög sprækur í leiknum og reyndi við alla bolta inní teig sem skilaði honum tvem mörkum og kemur þessu af stað fyrir Fjölnismenn.

2. Hákon Ingi Jónsson

Var að skapa sér mikið af færum og hefði hæglega getað skorað fleiri en skoraði tvö mörk sem er bara mjög gott dagsverk.

Atvikið

Vítaspyrnan sem Fjölnir fá á 50 mínútu sem klárar þetta fyrir þá eftir vítið ná Akureyringar sér ekki á strik og voru aldrei líklegir til að koma til baka.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnir fer á topp deildarinnar á markamun og byrja þetta mót mjög sterkt með 7-1 í markatölu. Fyrir Þórsliðið er þetta vont tap en mótið rétt að byrja sem þýðir að það er nóg eftir.

Vondur dagur

Varnarleikur Þórsara, gáfu Fjölnismönnum of mikinn tíma og svæði til að athafna sig og hleypa þeim í gegn og voru Fjölnismenn sjálfum sér verstir að nýta ekki þessi hálffæri sem þeir fengu upp æi hendurnar á sér.

Dómarinn - 5

Fínn leikur hjá Gunnari en gef honum bara 5 því að reka Úlf útaf fannst mér mjög soft en annars bara fín dómgæsla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.