Fotbolti.net
@arnimadmanÁrni Þór Grétarsson
Lengjudeild karla
JÁVERK-völlurinn
Heiðgrænt gras, hálfskýjað og nánast logn
Selfoss
Selfoss
2 - 1
Grótta
Grótta
Gary John Martin 36'1 - 0Gonzalo Zamorano Leon 40'2 - 02 - 143' Ólafur Karel Eiríksson
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Hrefna Morthens
Leik lokið!
Hörkuleikur, ótrúlegt að við fengum ekki fleiri mörk. Selfyssingar geta haldið áfram að láta sig dreyma, walking in Deno wonder land.
Grótta
90. mín
Gult spjald

Christopher Arthur Brazell

90. mín
Það er mikið um að vera í vítateig Selfyssinga. Spurning hvort eitthvað þurfu unadan að láta.
Selfoss
90. mín
Gult spjald

Jón Vignir Pétursson

Er of lengi að rölta í hornspyrnu.
89. mín
Aron Einarsson brýtur af sér hægra megin við vítateig, aukaspyrnan endar í hornspyrnu sem endar í engu.
Grótta
85. mín
InnArnar Daníel Aðalsteinsson
ÚtGunnar Jónas Hauksson
Selfoss
85. mín
InnAron Einarsson
ÚtGonzalo Zamorano Leon
Selfoss
84. mín
Gult spjald

Chris Jastrzembski

Fer groddalega í Ívan Óla
Grótta
78. mín
InnSigurður Hrannar Þorsteinsson
ÚtGabríel Hrannar Eyjólfsson
Bæði lið að koma ferskum löppum í leikinn.
Selfoss
78. mín
InnValdimar Jóhannsson
ÚtHrvoje Tokic
Grótta
75. mín
Gult spjald

Valtýr Már Michaelsson

Brýtur á Danijel á miðjum vallarhelmingi Gróttumanna.
71. mín
Kristófer Orri með skot upp úr litlu. Er fyrir utan teig og lætur vaða, boltinn rétt hægra megin við markið.
Grótta
68. mín
InnÍvan Óli Santos
ÚtÓliver Dagur Thorlacius
Christopher gerir breytingar á sínu liði
Grótta
68. mín
InnSigurbergur Áki Jörundsson
ÚtÓlafur Karel Eiríksson
65. mín
Kristófer á skot á mark, Chris er fyrir boltanum sem rétt sleikir slánna. Læti í þessu núna.
63. mín
Gróttumenn fá aukaspyrnu örlítið fyrir utan vítateig Selfyssinga, Kjartan Kári kom skoti beint á mark, en líka beint í fangið á Stefáni.
61. mín
Aukaspyrnan er við hlið vítateigs, en hún er ekki vel útfærð og endar í hraðri sókn Gróttu.
Grótta
61. mín
Gult spjald

Ólafur Karel Eiríksson

Ósáttur við aukaspyrnuna, lætur í sér heyra.
Grótta
61. mín
Gult spjald

Luke Morgan Conrad Rae

Heldur í Selfyssing á leið inn í teig.
58. mín
Hættuuleg sókn Selfyssinga, upp hægri kantinn. Tokic framlengir boltann á Gonzalo sem ræðst að marki af kantinum, Jón Ívan sér við honum.
55. mín
Læti í teig Selfyssinga, Gróttumenn nálægt því að komast í dauðafæri, boltinn rúllar til Stefáns í marki Selfyssinga. Hann tekur boltann upp og Gróttumenn ærast, vilja meina að Selfyssingur hafi rúllað boltanum til hans.
46. mín
Elías Ingi flautar þetta í gang aftur, aðeins er búið að bæta í gjóluna. Hún er enn hún er þó enn róleg og þvert á völlinn.
45. mín
Fjörugar lokamínútur hér á Selfossi. Fáum okkur einn bolla og tökum stöðuna á þessu á eftir.
Grótta
43. mín
MAAAARK!

Ólafur Karel Eiríksson

Gróttumenn fá aukaspyrnu fyrir utan vítateig, úr verður svokallaður darraðardans, botinn endar á aðfara af bakinu á Ólafi framhjá Stefáni Þór sem var að reyna að kíla boltann í burt.
Selfoss
42. mín
Gult spjald

Þormar Elvarsson

Selfoss
40. mín
MAAAARK!

Gonzalo Zamorano Leon

Það er skammt stórra högga á milli, Selfyssingar fá aukaspyrnu við hornfánann. Ingvi nær skallanum ekki á markið og boltinn berst út í teig. Þar kemur Gonzalo aðvífandi og neglir boltanum í netið.
Selfoss
36. mín
MAAAARK!

Gary John Martin

Gonzalo var nýbúinn að eiga skot rétt yfir slánna. Mínútu síðar fær Gary boltann inn fyrir vörnina, hann stingur af og rúllar boltanum fram hjá Jóni í marki Gróttu. Selfyssingar komnir yfir.
31. mín
Selfyssingar vinna boltann á miðjum vellinum, þeir fara fjórir fram á móti fjórum varnarmönnum. Tokic velur líklega ekki rétt og Grótta fær markspyrnu.
24. mín
Gróttumenn í stórhættulegri sókn! Gabríel Hrannar fær boltann á vítateigsboganum gegn fáliðaðri vörn Selfyssingum, einn þessara varnarmanna blokkar þó skotið. Eftir smá darraðardans líður hættan svo hjá.
17. mín
Gary Martin fær sendingu inn fyrir vörn Gróttu, hann fer upp hægri kantinn og rúllar boltanum í gegnum markteig, en þar er enginn samherji. Það er aðeins farið að lifna yfir þessu.
15. mín
Gary Martin kemst upp vinstri kantinn en fær ekkert nema hornspyrnu. Boltinn berst út fyrir teig á Danijel sem lúðrar boltanum vel framhjá.
13. mín
Selfyssingar fá hornspyrnu sem endar í höndum Jóns Ívans. Gróttumenn komast í álitlega stöðu sem nær þó ekki að verða að færi.
6. mín
Kjartan Kári kominn einn í gegn, en gómaður í rangstöðu. Liðin eru annars að fara rólega af stað.
1. mín
Leikur er hafinn, Grótta sækir í átt félagsheimili heimamanna.
0. mín
Star Wars þemað tekið að hljóma og vallaþulurinn byrjaður að segja gestum frá því hverjir munu leika hér í dag. Þetta fer að skella á!
0. mín
Selfyssingar tefla fram óbreyttu liði frá síðasta leik. Það sama er ekki hægt að segja um Gróttu, þar kemur inn Dagur Þór og út fer Kristófer Melsted.
0. mín
Aðstæður til knattspyrnuiðkunar á Selfossi eru vægast sagt til fyrirmyndar í dag!
0. mín
Í útvarpsþætti Fótbolta.net fóru Elvar Geir og Tómas Þór yfir leik HK - Selfoss og fóru vægast sagt ófögrum orðum um vörn Selfyssinga. Það er spurning hvernig henni muni farnast gegn flugbeittum skyndisóknum Gróttumanna. Á móti má segja að Selfyssingar tefli fram ansi hættulegri framlínu sem hatar ekkert að ná sér í mark eða þrjú til að setja á samfélagsmiðlana. Í öllu falli held ég að það sé óhætt að lofa einhverjum mörkum hér í kvöld!
0. mín
Grótta tók á móti strákunum hans Samma á Nesinu. Það urðu ekki síður athyglisverð úrslit, en Grótta lagði vestra með fimm mörkum gegn engu. Tvö lið sem ýmist hefur verið spáð á svipuðum stað í töflunni, Vestra var meira að segja spáð í fjórða sætið hjá Fótbolta.net. Luke Rae skoraði tvö mörk í þessum leik, aðrir minna.
0. mín
Selfyssingar byrjuðu tímabilið á leik gegn Handknattleiksfélagi Kópavogs. Í Kórnum náðu þeir nokkuð óvænt stigunum þrem eftir 3-2 sigur. Sterkt fyrir Selfyssinga að þar komust tveir af þeim sem eiga að skora mörkin á blað, Gary Martin með tvö og Gonzalo Zamorano með sigurmarkið.
0. mín
Toppslagur á Selossi Komið sæl og verið velkomin til leiks með okkur á JÁVERK-völlinn á Selfossi. Hér munu tvö af toppliðum Lengjudeildarinar mætast, en þau unnu bæði sinn leik í fyrstu umferð. Þessum liðum var spáð áttunda og níunda sæti bæði í spá þjálfara og fyrirliða sem og í spá Fótbolta.net.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.