SKÝRSLAN: Miðverðirnir hættulegustu sóknarmennirnir í sigri Vals
Hvað réði úrslitum?
Valsmenn eru með tvo gríðarlega sterka skallamenn sem eru alltaf hættulegar í hornum. Skallamörk úr hornspyrnum frá Mist og Örnu var það sem skildu liðin að í dag.
Bestu leikmenn
1. Arna Sif Ásgrímsdóttir og Mist Edvardsdóttir
Voru báðar mjög góðar varnarlega og skora svo úr hornum og það er það sem skóp þennan sigur Vals í dag. Þetta var leikur varnarmannanna þar sem bæði lið sköpuðu lítið sem ekkert sóknarlega
2. Ásdís Karen Halldórsdóttir
Var lífleg á hægri kantinum og kom sér nokkrum sinnum í ágætis stöður og færi . Svo var það hún sem hitti hornspyrnunum umtöluðu svona líka vel á turnana tvo.
Atvikið
Leikurinn var mjög rólegur og tíðindalítill svo mörkin tvö voru klárlega hápunktarnir. Þá lék Málfríður Erna sinn 400 leík í dag sem er magnaður áfangi.
Hvað þýða úrslitin?
Eftir leiki kvöldsins er Valur í öðru sæti deildarinnar með 9 stig líkt og Breiðablik sem er á toppnum, Selfoss á þó leik til góða og gæti tekið toppsætið.
Stjarnan er í 8 sæti með 4 stig.
Vondur dagur
Sóknarmenn beggja liða áttu alls ekki góðan dag og voru margir öflugir sóknarmenn sem hittu ekki á daginn sinn í dag.
Dómarinn - 7
Flottur leikur hjá Twana og lítið um vafa atriði, Kristján vildi meina að seinni hornspyrnan sem Valur skoraði úr hafi átt að vera markspyrna en ég sá það ekki.



