0. mín
Komiði sæl og veriði velkomin í beina textalýsingu frá viðureign U21 árs landsliða Íslands og Belgíu. Byrjunarliðin eru klár hér sitthvorum megin við lýsinguna.
Við minnum fólk á að valdar færslur af samskiptavefnum Twitter gætu ratað hingað inn. Notið #fotbolti svo eftir þeim sé tekið.
0. mín
Arnor Angele leikmaður Belgíu byrjar á varamannabekknum í dag með treyjunúmerið 13. Hann er skírður í höfuðið á Arnóri Guðjohnsen sem var í guðatölu hjá föður hans er hann lék með Anderlect á sínum tíma er hann lék þar á árunum 1983-1990.æ Arnor Angele er fæddur árið 1991 og leikur á miðjunni hjá Standard Liege.
0. mín
Finnur Orri Margeirsson ber fyrirliðabandið hjá íslenska liðinu í dag. Liðið er mikið breytt frá Evrópumótinu í sumar en margir leikmenn eru orðnir of gamlir fyrir liðið og þá eru þeir Kolbeinn Sigþórsson og Jóhann Berg Guðmundsson með A-landsliðinu og Hólmar Örn Eyjólfsson meiddur.
0. mín
Dómarateymið kemur frá Tékklandi. Miroslav Zelinka dæmir leikinn og línuverðir eru þeir Antonin Kordula og Ondrej Pelikan. Radek Matejek er fjórði dómari.
0. mín
Eyjólfur Sverrisson og Tómas Ingi Tómasson eru áfram þjálfarar íslenska liðsins sem er í dag að leika sinn fyrsta leik síðan á Evrópumótinu í sumar. Nú þurfa þeir að móta alveg nýtt lið eftir frábæran árangur í síðustu undankeppni. Þó eru leikmenn eins og Björn Bergmann Sigurðarson, Guðlaugur Victor Pálsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson sem voru á Evrópumótinu. Þeir byrja allir í dag.
0. mín
Eyjólfur Sverrisson fær ekki að koma nálægt íslenska liðinu í dag og er því mættur í VIP stúkuna. Hann fékk brottvísun í síðasta leik á Evrópumótinu og byrjar því fyrstu tvo leiki Íslands í leikbanni. Í fjarveru hans stýrir Tómas Ingi Tómasson liðinu.
0. mín
Liðin eru komin út á völl og nú verða þjóðsöngvar liðanna leiknir. Það styttist í leik og áhorfendur eru farnir að tínast í stúkuna.
1. mín
Leikurinn er hafinn.
8. mín
Eyjólfur og Tómas Ingi stilla upp í leikkerfinu 4-3-3. Eitthvað sem lítur svona út:
Arnar Darri Pétursson
Jóhann Laxdal - Eiður Aron - Finnur Orri - Kristinn Jónsson
Björn Daníel - Guðlaugur Victor
Þórarinn Ingi
Aron Jóhannsson - Björn Bergmann - Kristinn Steindórsson
9. mín
Leikurinn fer frekar rólega af stað. Bæði lið hafa fengið hornspyrnur sem ekkert kom út úr. Á meðan halda áhorfendur áfram að bætast í stúkuna og kemur í raun á óvart hversu vel er mætt miðað við að leikurinn hefst 17:00 á virkum degi.
13. mín
Góð sókn hjá Íslandi endaði með því að Aron sendi boltann fyrir mark Belga, Björn Daníel skallaði áfram til Kristinn Steindórssonar sem var í góðu færi en skaut lausu skoti beint á Coosemans markmann Belga.
16. mín
Íslendingar sækja mest upp vinstra megin þar sem Blikarnir Kristinn Steindórsson og Kristinn Jónsson eru. Sá síðarnefndi er bakvörður og fer mikið upp völlinn og tekur virkan þátt í sóknarleiknum.
19. mín
Gult spjald
Dries Wuytens
Wuytens fær áminningu fyrir að brjóta á Birni Bergmann sem hefði sloppið einn í gegn hefði hann náð boltanum.25. mín
MAAAARK!
Björn Bergmann Sigurðarson
Ísland er komið yfir. Björn Daníel Sverrisson gaf góða stungusendingu inn fyrir vörn Belganna á Björn Bergmann sem átti ekki í vandræðum með að afgreiða færið og lyfti boltanum yfir Coosemans í markinu.35. mín
Arnar Darri varði frábærlega frá Guillaume Francois sem var í dauðafæri í teignum.
38. mín
Íslendingar fengu aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir vítateig Belga eftir að booltinn fór í hönd eins Belga. Aron Jóhannsson tók spyrnuna og skaut hátt yfir markið.
39. mín
Kristinn Steindórsson tók bogaskot fyrir utan teiginn sem Coosemans greip.
42. mín
MAAAARK!
Christian Benteke
Thomas Meunier sendi boltann inn fyrir vörn íslenska liðsins á Christian Benteke sem var einn gegn Arnari Darra og skoraði. Staðan orðin 1-1 og styttist í hálfleik.45. mín
Það er kominn hálfleikur á Vodafonevellinum. Staðan er 1-1.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. Engin breyting var gerð á liðunum í hálfleik.
48. mín
Bendeke í góðu færi eftir fyrirgjöf af hægri en skallaði yfir mark íslenska liðsins.
56. mín
Björn Bergmann slapp einn í gegn og ætlaði að setja boltann undir Coosemans en nú varði hann frá honum. Björn Daníel átti aftur sendinguna og þarna munaði litlu að þeir næðu að endurtaka mark Íslands.
57. mín
Benteke heldur áfram að valda usla fyrir framan mark íslenska liðsins. Nú átti hann fastan skalla rétt yfir markið.
65. mín
Gult spjald
Kristof D\'haene
Jóhann Laxdal geystist upp hægri kantinn og D\'Haene braut á honum og fær áminningu fyrir.68. mín
Guðlaugur Victor stakk boltanum inn á Aron Jóhannsson sem var kominn einn gegn markverði en skaut yfir markið.
68. mín
InnGianni Bruno
ÚtGuillaume Francois
Fyrsta skipting Belga. Bruno leikmaður Lille í Frakklandi kemur inn fyrir Francois sem leikur með Beerschot.
74. mín
InnKristján Flóki Finnbogason
ÚtElías Már Ómarsson
Fyrsta skipting íslenska liðsins. Þórsarinn Atli Sigurjónsson kemur inn fyrir FH-inginn Björn Daníel Sverrisson.
76. mín
InnPaul-Jose Mpoku
ÚtKristof D\'haene
83. mín
Sjö mínútur eftir af leiknum. Belgarnir eru farnir að sækja stífar á okkur en eru klaufskir upp við markið og lítið kemur út úr þeim. Það er fínt fyrir okkar menn.
86. mín
MAAAARK!
Björn Bergmann Sigurðarson
Björn Bergmann kemur Íslendingum í 2-1. Kristinn Steindórsson sendi boltann innfyrir vörn Belga og þrátt fyrir að Coosemans hafi verið í boltanum fór hann í netið. Aðeins þrjár mínútur eftir af venjulegum leiktíma núna og stefnir í íslenskan sigur.89. mín
InnFunso Ojo
ÚtLuis Pedro Cavanda
Síðasta skipting Belga.
89. mín
Gult spjald
Christian Benteke
89. mín
Gult spjald
Guðlaugur Victor Pálsson
Guðlaugur Vicyor og Benteke fengu áminningar fyrir að kljást sín á milli.90. mín
Gult spjald
Björn Bergmann Sigurðarson
Björn Bergmann fær áminningu fyrir að trufla markvörð Belga í að koma boltanum frá sér.90. mín
Einni mínútur er bætt við venjulegan leiktíma.
91. mín
Benteke með sitt besta færi, skallaði að marki en nú varði Arnar Darri vel.
91. mín
Leiknum er lokið.



