0. mín
Góða kvöldið kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þróttar og ÍR í 1. deild karla, en hann verður leikinn á Valbjarnarvelli og hefst klukkan 18:30.
1. mín
Þá er leikurinn hafinn. ÍR-ingar geta með sigri bjargað sæti sínu í deildinni endanlega en Þróttarar hafa í raun að sáralitlu að keppa.
17. mín
ÍR-ingar vildu fá víti þegar Árni Freyr Guðnason var kominn inn í teiginn. Snæbjörn kom á móti honum og Árni Freyr féll, en einungis var hornspyrna dæmd, enda virtist Snæbjörn snerta boltann fyrst. Annars hefur leikurinn verið tiltölulega rólegur, Þróttarar halda boltanum aðeins betur innan liðsins en fá færi hafa skapast.
33. mín
MAAAARK!
Sveinbjörn Jónasson
Þróttarar eru komnir yfir!! Oddur Björnsson fékk sendingu inn í teiginn, renndi boltanum á Sveinbjörn sem kom á skriði og skoraði! Sveinbjörn hefur verið iðinn við kolann í sumar og heldur því áfram!45. mín
MAAAARK!
Árni Freyr Guðnason
ÍR er búið að jafna! Jón Gísli Ström átti sprett upp hægri kantinn og gaf fyrir markið þar sem Árni Freyr kastaði sér fram og skallaði boltann í netið af markteig. Nokkuð sanngjarnt þar sem fyrri hálfleikurinn er í heildina búinn að vera nokkuð jafn.45. mín
Það er búið að flauta til hálfleiks hérna í Laugardalnum og er staðan 1-1. Þróttarar voru öllu betri framan af og spiluðu boltanum vel á milli sín en gestirnir tóku síðan hægt og rólega yfir leikinn áður en Sveinbjörn kom Þrótti yfir. Eftir það jafnaðist leikurinn út og ÍR-ingar jöfnuðu verðskulldað.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn.
49. mín
Hallur Hallsson á skot eftir hornspyrnu sem fer rétt fram hjá.
55. mín
MAAAARK!
Jón Gísli Ström
Gestirnir eru komnir yfir í Laugardalnum! Jón Gísli Ström fékk góða sendingu inn fyrir vörn Þróttara og lyfti boltanum yfir Snæbjörn í markinu.65. mín
MAAAARK!
Árni Freyr Guðnason
Árni Freyr virðist vera að tryggja Breiðhyltingum sigurinn með sínu öðru marki! Hann tók aukaspyrnu utan teigs sem hafði viðkomu í Ingvari Ólasyni og fór þaðan beint á Snæbjörn sem náði á einhvern óskiljanlegan hátt að missa boltann yfir sig.66. mín
InnArnþór Ari Atlason
ÚtHjörvar Hermannsson
66. mín
InnDaði Bergsson
ÚtBirkir Pálsson
72. mín
InnKristján Ari Halldórsson
ÚtÁrni Freyr Guðnason
81. mín
InnDavíð Már Stefánsson
ÚtTómas Agnarsson
82. mín
ÍR hefur verið mikið betri aðilinn í seinni hálfleik og skapað sér töluvert fleiri færi. Þróttarar virðast þó ætla að reyna að klóra í bakkann áður en yfir líkur.
84. mín
InnEgill Björnsson
ÚtHelgi Pétur Magnússon
88. mín
Davíð Már Stefánsson sleppur inn fyrir vörn Þróttarar eftir góða skyndisókn. Dusan Ivkovic á hins vegar góðan sprett til baka og nær að trufla Davíð sem skýtur boltanum fram hjá en Snæbjörn var kominn út á móti honum.
89. mín
InnElías Ingi Árnason
ÚtJón Gísli Ström
92. mín
Elías Ingi Árnason sleppur inn fyrir og reynir að setja boltann yfir Snæbjörn sem hljóp út á móti en boltinn fer hátt yfir.
94. mín
Leiknum er lokið með verðskulduðum 3-1 sigri ÍR.


