SKÝRSLAN: Hrakfarir FH halda áfram
Hvað réði úrslitum?
Keflavík skoraði tvö mörk en FH eitt svo einfalt er það. En það kemur til vegna þess að það var einhver auka grimmd í liði Keflavíkur í dag sem gestina úr Hafnarfirði skorti.
Bestu leikmenn
1. Dani Hatakka
Finninn var flottur í dag, átti í fullu tré við Matthías í loftinu og skoraði gott mark sem reyndist sigurmarkið.
2. Patrik Johannesen
Keflavíkurliðið reiddi sig mikið á Joey Gibbs í sóknarleik liðsins í fyrra. Patrik kemur með nýja vídd inn í sóknarleikinn og er duglegur að keyra á varnir andstæðingana. Flottur leikur hjá honum í dag.
Atvikið
Verð að gefa Sindra atvik leiksins en í tvígang í seinni hálfleik varði hann vel einn á móti einum og kom í veg fyrir að FH myndi jafna.
Hvað þýða úrslitin?
Liðin eru jöfn að stigum í sjöunda til áttunda sæti deildarinnar. FH ´númer sjö en Keflavík sæti neðar á markatölu.
Vondur dagur
Kristinn Freyr Sigurðsson, Mér fannst honum ganga illa að komast í takt við leikinn en slíkt hið sama má segja um flesta framliggjandi menn FH, Mótlætið fór í taugarnar á þeim sem virtist bitna heldur á spilamennskunni.
Dómarinn - 7
Fínn leikur hjá Þorvaldi en ég set spurningamerki við eitt atvik. Átti Ernir Bjarnason mögulega að fá rautt fyrir tæklingu á Lasse Petry? Mér fannst hann fara með báða fætur á undan sér en bíð þess að sjá atvikið betur til þess að fullyrða um það.



