Fotbolti.net
Besta deildin
Ingi Snær Karlsson
Besta-deild karla
Origo völlurinn
Sól og heiðskírt
Valur
Valur
1 - 3
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 155' Nikolaj Andreas Hansen (víti)0 - 274' Logi Tómasson 0 - 384' Helgi GuðjónssonArnór Smárason 90'1 - 3
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 1068
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Víkingar með sterkan sigur á Val!

Takk fyrir mig og ég minni á viðtöl og skýrslu hér á eftir.
90. mín
Tryggvi klippir boltann framhjá eftir fyrirgjöf frá Birki Má.
90. mín
Dauðafæriii!!

Helgi kemst aleinn í gegn eftir hreinsun en Sveinn Sigurður gerir vel að verja.
90. mín
Fjórum mínútum bætt við.
Valur
90. mín
MAAAARK!

Arnór Smárason

Skorar með miklu öryggi. Setur boltann hægra megin en Ingvar fer í hitt hornið.
89. mín
Vítiiii!!

Valur fær víti þegar Kyle brýtur á Tryggva Hrafn.
88. mín
Birnir vippar boltanum á Karl Friðleif sem tekur á móti honum en skýtur yfir.
87. mín
Öll þrjú mörk Loga í efstu deild hafa komið eimitt á móti Val.
Víkingur R.
84. mín
MAAAARK!

Helgi Guðjónsson

Víkingur er að ganga frá Val!

Óheppilegur varnarleikur hjá Val, Ari keyrir á Rasmus sem sparkar boltanum í Ara og á Helga sem er kominn einn í gegn og leggur hann framhjá Sveini!
83. mín
Ari með fyrirgjöf sem Sveinn Sigurður grípur.
Valur
81. mín
InnSigurður Dagsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
Valur
81. mín
InnAlmarr Ormarsson
ÚtBirkir Heimisson
Valur
81. mín
InnRasmus Steenberg Christiansen
ÚtHeiðar Ægisson
80. mín
Birnir Snær keyrir á mark Vals, skilur boltann eftir fyrir Ara en Birkir Már sér við þeim.
78. mín
Ari Sigurpáls pressar Hólmar og aukaspyrna dæmd á Ara.

Hann liggur eftir og virðist hafa farið fast í Hólmar.
Víkingur R.
76. mín
Gult spjald

Pablo Oshan Punyed Dubon

Víkingur R.
74. mín
MAAAARK!

Logi Tómasson

Víkingar að komast í 2-0!

Logi keyrir að teignum og á skot sem endar hjá Helga Guðjóns. Hann sendir aftur á Loga sem hamrar boltanum í fjær með vinstri.
72. mín
Hólmar skallar fyrirgjöf frá Birni Snæ burt.
Valur
70. mín
InnSveinn Sigurður Jóhannesson
ÚtGuy Smit
Guy Smit hefur tognað aftan í læri eftir úthlaup hér rétt áðan og hefur lokið leik.
Valur
65. mín
Gult spjald

Arnór Smárason

Jóhann mjög spjald glaður og gefur Arnór Smára gult fyrir tæklingu á Pablo.
Valur
63. mín
InnArnór Smárason
ÚtÁgúst Eðvald Hlynsson
Valur
63. mín
Gult spjald

Guy Smit

Guy fær líka spjald því hann keyrir í Helga eftir dýfuna. Mjög heimskulegt.
Víkingur R.
63. mín
Gult spjald

Helgi Guðjónsson

Ari sendir á Helga Guðjóns sem tekur boltann með sér framhjá Guy Smit og hendir sér í grasið. Helgi uppsker gult fyrir dýfu!
60. mín
Júlli Magg á skot í fyrsta framhjá.
Víkingur R.
59. mín
InnBirnir Snær Ingason
ÚtErlingur Agnarsson
Víkingur R.
55. mín
Mark úr víti!

Nikolaj Andreas Hansen


ÍSKALDUR

Tekur panenka spyrnu á mitt markið. Gerist ekki fallegra.
54. mín
Vítiiiiii!!!!

Hendi á Birki eftir hornspyrnu.
52. mín
Logi ætlar að senda á Helga en Birkir Már skallar í horn.
51. mín
Pablo reynir óvænt skot úr aukaspyrnu en Guy á ekki í vandræðum með það.
50. mín
Eftir klafs í teignum nær Hólmar skalla á markið en Ingvar sér við honum.
48. mín
Orri reynir fyrirgjöf á jörðinni en uppsker horn.
46. mín
Sigurður Egill reynir skot frá miðju þar sem Ingvar var kominn langt úr markinu.

Framhjá fer hann.
46. mín
Leikur hafinn
Víkingar byrja seinni hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Jóhann Ingi flautar til hálfleiks.

Vonumst eftir meiri hasar í seinni...
44. mín
Nikolaj Hansen með misheppnaða sendingu sem fer út af endalínu.

Lítið sést af honum.
41. mín
Vantar meiri hættu á loka þriðjung hjá báðum liðum.
39. mín
Erlingur Agnars fær aukaspyrnu mitt á milli vítateigs og miðju sem Valsmenn eru ósáttir með.
37. mín
Helgi fer í grasið eftir viðkomu við Birki í fyrirgjöf og heimtar víti.

Ekki sammála Helga þarna.
36. mín
Tryggvi Hrafn leikur á Karl Friðleif og reynir sendingu út í teig en Víkingar fyrstir á boltann.
33. mín
Ari reynir Zidane snúning á Ágúst og fær aukaspyrnu.
32. mín
Jesper með fyrirgjöf sem er beint á Ingvar í markinu.
31. mín
Karl Friðleifur með fyrirgjöf sem var aðeins of há, Ari nær henni hinum megin við teigin en Birkir Már lokar á hann.
29. mín
Pablo tekur Orra Hrafn niður fyrir utan vítateig Vals og aukaspyrna dæmd.
25. mín
Tryggvi Hrafn sendir yfir á Heiðar Ægis sem á laust skot í varnarmann og í horn.
24. mín
Tryggvi Hrafn með skiptingu yfir á Birki Má sem sendir hann fyrir markið en Víkingar skalla frá.
Víkingur R.
22. mín
Gult spjald

Karl Friðleifur Gunnarsson

Rífur í Jesper á kantinum.
17. mín
Aftur er hápressa Vals að virka og Sigurður Egill kemst í skotfæri en Kyle með góða tæklingu á síðustu stundu.
Víkingur R.
16. mín
Gult spjald

Júlíus Magnússon

Fer í seina tæklingu á Birki Heimis á miðsvæðinu
15. mín
Erlingur Agnars ætlaði að lauma boltanum út í teigin en hann er hreinsaður í horn.
13. mín
Valur með góða pressu og fá boltann en ekkert verður úr.
10. mín
Logi lokar á sendingu Birki Más sem fær horn.
9. mín
Hólmar skallar aukaspyrnu Víkinga frá og Ari Sigurpáls nær frákasti en skotið langt yfir.
6. mín
Í næstu sókn bruna Víkingar upp sem endar með horni eftir skot Karl Friðleifs.
5. mín
Tryggvi Hrafn fær sendingu innfyrir vörn Víkinga en snertingin klikkaði!
4. mín
Jesper Juelsgård með fyrirgjöf sem fer yfir allan teigin og í innkast hinum megin.
3. mín
Orri Hrafn brýtur á Kyle eftir pressu.
2. mín
Karl Friðleifur með fyrirgjöf sem Guy Smit tekur.
1. mín
Sigurður Egill Lárusson byrjar upp á topp og Viktor Örlygur Andrason byrjar í hafsent.
1. mín
Leikur hafinn
Valur sparka þessu í gang!
Fyrir leik
Stúkan að fyllast enda um stórleik að ræða og frábært veður!
Fyrir leik
Bæði lið að glíma við meiðsli

Hjá Val eru þeir Patrick Pedersen og Aron Jóhannsson meiddir og auk þess er Arnór Smárason og Guðmundur Andri Tryggvason tæpir á bekknum. Allir sóknarþenkjandi leikmenn.

Hjá Víkingum vantar miðverðina Oliver Ekroth og Halldór Smára Sigurðsson.
Fyrir leik
Breytingar á byrjunarliðum

Bæði lið gera tvær breytingar frá síðasta leik:

Hjá Víkingum koma Viktor Örlygur og Ari Sigurpálsson inn í liðið fyrir Oliver Ekroth og Kristal Mána.

Hjá Val koma þeir Heiðar Ægisson og Sigurður Egill inn í liðið fyrir Hauk Pál og Guðmund Andra.
Fyrir leik
Víkingur tilkynnti í dag hópinn fyrir leikinn á Twitter og það vekur athygli að Sölvi Geir Ottesen er skráður í hópinn. Sölvi er aðstoðarþjálfari liðsins en hann lék miðvörð ásamt Kára Árnasyni með liðinu í fyrra.

Oliver Ekroth og Halldór Smári Sigurðsson eru hvorugir í hópnum í dag og Kristall Máni Ingason er í banni.

Sölvi Geir Ottesen snýr aftur í leikmannahóp Víkings.
Fyrir leik
Valur hefur farið vel af stað í mótinu og er í 4. sætinu með 13 stig og takist þeim að vinna í dag fara þeir í 2. sætið. Þeir hafa unnið fjóra, gert eitt jafntefli og tapað einum.

Gestirnir í Víkingi eru í 6. sætinu með 10 stig en hafa leikið leik meira en önnur lið í deildinni utan Keflavíkur. Þeir hafa unnið þrjá, tapað þremur og gert eitt jafntefli.
Fyrir leik
Jóhann Ingi Jónsson er dómari leiksins í dag. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Eðvarð Eðvarðsson eru honum til aðstoðar á línunum og Pétur Guðmundsson er skiltadómari. Eftirlitsmaður KSÍ er svo Jón Magnús Guðjónsson sem fylgist með umgjörðinni og störfum dómara.
Jóhann Ingi Jónsson er dómari leiksins.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Vals og Víkings í Bestu-deild karla.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 á Origo-vellinum að Hlíðarenda.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.