Fotbolti.net
@fotboltinetJón Ólafur Eiríksson
Lengjudeild karla
Olísvöllurinn
Gola og sól, hiti 11 gr.
Vestri
Vestri
3 - 3
Þór
Þór
0 - 112' Harley Bryn WillardNicolaj Madsen 19'1 - 1Aron Birkir Stefánsson (sjm) 22'2 - 12 - 243' Nikola Kristinn Stojanovic2 - 374' Harley Bryn WillardJesus Maria Meneses Sabater 90'3 - 3
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Markaleikur fyrir vestan

Hvað réði úrslitum?

Fullt af færum sérstaklega í fyrri hálfleik. Þórsarar virtust vera að sigla þessu nokkuð örugglega heim þegar Silas nældi í hornspyrnu á síðustu mínútu venjulegs leiktíma. Chechu Meneses hafði hótað þessu einu sinni áður og reis manna hæst og tryggði heimamönnum stigið.

Bestu leikmenn

1. Harley Willard

Bjó til tvö mörk alveg upp á sitt einsdæmi. Skaut einnig í samskeytin úr aukaspyrnu rétt áður en hann skoraði sitt seinna mark. Stórhættulegur og má ekki fá það pláss sem hann fékk á köflum í þessum leik.

2. Silas Songani

Tvær stoðsendingar í fyrsta byrjunarliðsleik Silasar í Lengjudeildinni. Teknískur og með góðar fyrirgjafir. Gæti leyst vandræðastöðu fyrir Vestra ef þetta er það sem hann býður upp á.

Atvikið

Jöfnunarmark á 90. mínútu í leik fullum af mörkum og marktækifærum. Stigið virtist farið fyrir Vestramenn sem sköpuðu ekkert eftir að Þór komust í 3-2 en skalli Chechu Meneses bjargaði þeim í dag.

Hvað þýða úrslitin?

Liðin eru áfram jöfn og með 5 stig eftir fjóra leiki. Bæði lið að hóta því að sigla lignan sjó í deildinni í sumar.

Vondur dagur

Toby King á miðju Vestra átti erfitt uppdráttar. Kom lítið út úr honum og hann leit afar illa út í fyrra marki Harley Willard þegar Willard náði að rekja boltann 40 metra með Toby í eftirdragi. Tekinn út af í hálfleik.

Dómarinn - 8

Fínn leikur hjá Einari. Vítaspyrnan virtist rakin og eina vafaatriðið hvort Woo átti að fá annað gult. Annars fín stjórn á leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.