Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Lengjudeild karla
Grindavíkurvöllur
Suðurnesja gola, sól af og til og hiti um 13 gráður
Grindavík
Grindavík
1 - 0
Fylkir
Fylkir
Kristófer Páll Viðarsson 57'1 - 0
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Þrjú stig til Grindavíkur í mjög bragðdaufum leik

Hvað réði úrslitum?

Aukaspyrna Kristófer Pálls Viðarssonar réði úrslitum hitti boltann vel og nýtti sér vindinn til þess að setja boltann á markið og í netið fór hann. Annars var leikurinn ekki mikið fyrir augað og fátt um fína drætti.

Bestu leikmenn

1. Kristófer Páll Viðarsson

Gæði í markinu skila honum þessu. Lipur í fótunum og verður gaman að sjá hvernig hann smellur inn í þetta lið Grindavíkur þegar líður á sumarið.

2. Vladimir Dimitrovski

Klettur til baka, gerir fá mistök og öruggur á boltann. Solid frammistaða í dag.

Atvikið

Aukarspyrna Kristófers er augljóst val en ég kýs að horfa í aðra átt. Undir lokin fauk tómur blár Maryland kexpakki um völlinn og gladdi okkur í blaðamannastúkunni að sjá hve fallega glampaði á hann á daufum punkti í leiknum. Nei að öllu gamni slepptu aukaspyrna Kristófers var góð og þess eðlis að hann átti það skilið að hún skilaði sigurmarki. Svo má minnast á stuðningsmenn Fylkis sem fögnuðu jöfnunarmarki of snemma þegar dómari leiksins dæmdi í raun aukaspyrnu. Gef þeim það þó að handabending dómarans var talsvert villandi og vorum við í blaðamannaboxinu alls ekkert vissir um stund sjálfir.

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík hoppar í þriðja sæti deildarinnar með átta stig. stigi á eftir Gróttu í 2.sæti og tveimur stigum á eftir toppliði Selfoss. Fylkir sæti neðar með sjö stig.

Vondur dagur

Það verður aldrei auðvelt að spila fótbolta á hörðum þurrum velli í svona vindi. Setjum fótboltann í vondan dag enda átti hann aldrei séns í Grindavík

Dómarinn - 7

Eitt og annað sem var ekki upp á 10 hjá Aðalbirni en heilt yfir bara fínasti leikur hjá honum og engin stórvægileg mistök.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.