Fotbolti.net
Jón Már Ferro
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
5 - 1
KV
KV
Kjartan Kári Halldórsson (víti) 24'1 - 0Kjartan Kári Halldórsson 38'2 - 0Óliver Dagur Thorlacius 40'3 - 03 - 145' Grímur Ingi JakobssonKjartan Kári Halldórsson 62'4 - 1Sigurður Hrannar Þorsteinsson 85'5 - 1
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Lánlausir KV-menn tapa enn einum leiknum

Hvað réði úrslitum?

Grótta var betra í fyrri hálfleik og fóru með 3-1 forystu í hálfleik. Það var því miður of mikið fyrir KV sem reyndi allt sem það gat til að komast til baka. Í seinni hálfleik varðist Grótta vel og Jón Ívan varði víti frá Oddi Inga í stöðunni 4-1. Það gerði í raun út um leikinn.

Bestu leikmenn

1. Kjartan Kári Halldórsson

Skoraði þrennu í dag og var sprækur eins og alltaf. Mjög áræðinn og ógnandi allan leikinn.

2. Arnar Þór Helgason

Var öruggur í sínum aðgerðum. Bæði með boltann og varnarlega. Vann mikið af skallaboltum.

Atvikið

Rauða spjaldið sem Patryk fær. Tvöföld refsins, víti og rautt. Gerði endanlega út um leikinn fyrir KV.

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða að KV situr enn á botni deildarinnar eftir fjórða tapleikinn í fjórum leikjum. Gróttu heldur áfram að safna stigum og heldur sér nálægt toppi deildarinnar.

Vondur dagur

Arnar Þór, dómari. Var með litla stjórn á leiknum í seinni hálfleik. Hefði mátt dæma fyrr í einhverjum tilvikum til að hafa meiri stjórn á leiknum. Grótta braut mikið í seinni hálfleik og komust upp með það án þess að fá mikið af spjöldum. Gaf Patryk varnarnmanni KV rautt spjald þegar hann gerðist brotlegur innan teigs. Víti og rautt. Hefði frekar bara átt að vera víti að einhverja mati. Svo vildi KV fá víti sem hann dæmdi ekki. Fyrir utan þessi atvik var rökstuðningur hans við mörgum brotum oft furðulegur.

Dómarinn - 4

Arnar Þór hefur sennilega átt betri leiki en þennan. Hann hleypti leiknum upp í æsing. Sleppti mörgum brotum sem olli því að margir leikmenn voru pirraðir. Báðir þjálfarar voru sammála um að leikurinn hefði getað verið betur dæmdur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.