Fotbolti.net
@MistRunarsdottiMist Rúnarsdóttir
Mist Rúnarsdóttir
Lengjudeild kvenna
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
1 - 2
Tindastóll
Tindastóll
Hulda Ösp Ágústsdóttir 12'1 - 01 - 141' Hannah Jane Cade1 - 246' Hugrún Pálsdóttir
Dómari: Hafþór Bjartur Sveinsson

SKÝRSLAN: Amber var ótrúleg í fjórða sigri Tindastóls

Hvað réði úrslitum?

Þetta var hörkuleikur tveggja sterkra liða sem bæði reyndu hvað þau gátu til að sækja sigur. Leikurinn var kaflaskiptur en jafn þegar heilt er á litið. Frammistaða Amber í marki Tindastóls gerði gæfumuninn.

Bestu leikmenn

1. Amber Kristin Michel

Frábær frammistaða hjá markverðinum öfluga. Amber átti nokkrar rosalegar viðbragðavörslur og var eldsnögg út úr markinu sínu þegar loka þurfti á sóknarmenn Víkinga. Greip vel inn í fyrirgjafir og skilaði boltanum vel frá sér. Geggjuð.

2. Hannah Jane Cade

Virkilega góð frammistaða hjá kraftmikilli Hönnuh á miðjunni hjá Tindastól. Var gríðarlega vinnusöm og skapaði mikið fyrir liðið sitt.

Atvikið

Tindastólsliðið kom svakalega kröftugt til leiks í síðari hálfleik og Hugrún Pálsdóttir var eldsnögg að koma þeim yfir. Markið reyndist sigurmark leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

Tindastólskonur vinna sinn fjórða leik, fara í 12 stig. Eru stigi á eftir toppliði FH og með jafnmörg stig og HK sem á leik til góða. Víkingar eru þar rétt á eftir með 9 stig. Toppbaráttan verður æsispennandi í Lengjudeildinni þetta árið.

Vondur dagur

Það er ekki hægt að tala um að neinn hafi átt vondan dag nema auðvitað bara Víkingsliðið að því leiti að Víkingum gekk illa að koma boltanum framhjá Amber.

Dómarinn - 7

Nokkur atriði hér og þar sem er hægt að skeggræða. Heilt yfir nokkuð gott hjá tríóinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.