SKÝRSLAN: HK klárar Þór á 10 mínútum
Hvað réði úrslitum?
HK var betra liðið allan leikinn og í seinni hálfleik löguðu þeir litla hluti sem gekk ekki í þeim fyrri og úr því kom 3 mörk.
Bestu leikmenn
1. Stefán Ingi Sigurðarson (HK)
Vann vel allan leikinn. Leiddi línuna vel og skoraði verðskuldað mark sem hann þurfti svolítið að hafa fyrir.
2. Arnþór Ari Atlason (HK)
Var duglegur inn á miðjunni og lét finna fyrir sér. Ekki alveg víst hvort hann skoraði annað mark HK en mér sýndist hann koma við boltann og það er þá bara plús.
Atvikið
Vitaspyrnu dómurinn á 50. mínútu. Þór hafði gert vel fram að því að verjast sóknum HK en eftir að heimamenn skoruðu úr vítinu opnuðust algjörlega flóðgáttirnar.
Hvað þýða úrslitin?
HK sitja í 6. sæti með 9 stig en þó með leik til góða á liðin í kringum sig.
Þórsarar fara niður um 1 sæti í það 9. og eru með 5 stig.
Vondur dagur
Varnarvinna Þórs sem var búinn að vera til fyrirmyndar í fyrri hálfleik hrundi algjörlega á 10 mínútna kafla í byrjun seinni hálfleiks. Þegar liðið liggur undir sókn allan leikinn þarf einbeitingin að vera upp á 10 allan leikinn en þeir brugðust þarna.
Dómarinn - 9
Ívar Orri stóð sig með prýði, leikurinn átti í hættu að leysast upp í vitleysu þegar sum hörkubrotin komu en Ívar náði að róa menn. Vítaspyrnudómurinn var líka réttur.



