SKÝRSLAN: 5 stjörnu afgreiðsla hjá Íslenska liðinu
Hvað réði úrslitum?
Frábær leikur Íslenska liðsins. Voru einfaldlega miklu betri en Kýpur í dag og áttu sigurinn svo sannarlega skilið.
Frábært að sjá strákana í þetta mikilvægum leik og gjörsigra Kýpur 5-0. Framtíðin er björt!
Bestu leikmenn
1. Kristall Máni Ingason
Skoraði þrennu að eigin sögn. Fær allavega 2 mörk og stoðsendingu út úr þessum leik og lék á alls oddi.
2. Kristian Nökkvi Hlynsson
Fór kannski ekki jafn mikið fyrir honum og í fyrri tveim leikjum en hann á stóran þátt í sjálfsmarkinu og skorar svo loka markið í leiknum. Þetta er klár framtíðarleikmaður Íslands.
Atvikið
Mark Sævars Atla.
Kristall Máni sakar félaga sinn um stuld en Sævar Atli sá ekki betur en svo að hann þyrfti að reka smiðshöggið því hann var ekki á leiðinni inn að hans sögn. Skemmtilegur banter á milli þeirra félaga.
Hvað þýða úrslitin?
Draumurinn lifði þetta af!
Umspilsætið er staðreynd eftir frábært verkefni þar sem Íslenska liðið sótti fullt hús úr síðustu þrem leikjunum með markatöluna 17-1 sem verður að teljast stórkostlegt afrek!
Vondur dagur
Kýpur áttu ekkert sérstakan dag í dag sama hvert var litið.
Stefanos Kittos markverði Kýpur tókst að vera skipt af velli og ég gat ekki séð að hann hafi eitthvað meiðst eða svoleiðs sem er ekki sérstakur gæðastipill ef svo var ekki raunin.
Hvort sem það hafi síðar alltaf verið plönuð skipting eða ekki þá látum við það liggja milli hluta.
Dómarinn - 6
Var alls ekki slakur en átti nokkrar ákvarðanir sem voru skrítnar. Enginn sem hafði þó áhrif á leikinn og þá fær hann hrós fyrir að falla ekki fyrir þeim skiptum sem Kýpur létu sig falla í teig Íslands.



