Fotbolti.net
@GunnarBjarturGunnar Bjartur Huginsson
Lengjudeild kvenna
Kaplakrikavöllur
11 gráður, vindur og grátt yfir
FH
FH
6 - 0
Grindavík
Grindavík
Kristin Schnurr 28'1 - 0Shaina Faiena Ashouri 32'2 - 0Colleen Kennedy 40'3 - 0Esther Rós Arnarsdóttir 59'4 - 0Elísa Lana Sigurjónsdóttir 61'5 - 0Elísa Lana Sigurjónsdóttir 74'6 - 0
Dómari: Lars Davíð Gunnarsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Stórsigur FH gegn Grindavík

Hvað réði úrslitum?

Grimmd og hraði FH. Þær pressuðu upp allan völlinn og voru með öll tök á leiknum og uppskáru eftir því.

Bestu leikmenn

1. Colleen Kennedy

Auðvelt val. Hún var frábær í dag og gæðin skeinu af henni. Colleen átti mark og stoðsendingu.

2. Shaina Faiena Ashouri

Súrt fyrir Elísu Lönu en allt spil FH fer í gegnum hana. Hún skoraði og ógnaði sífellt.

Atvikið

Ég verð að nefna þriðja markið hjá Colleen Kennedy, þar sem hún þeyttist upp kantinn og kláraði snyrtilega. Þar má segja að leikurinn hafi runnið úr höndum Grindavíkur.

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða að FH haldi sínu í fyrsta sætinu eftir sjö leiki spilaða. Þessi úrslit merkja að Grindavík sitji í sjötta sæti deildarinnar en hin liðin fyrir neðan eiga eftir að spila sína leiki.

Vondur dagur

Grindavíkurliðið í heild sinni en ef ég þyrfti að velja einn leikmann væri það Lauren Houghton, markmaður gestanna. Hún fékk á sig sex mörk og hefði átt að gera betur í nokkrum þeirra.

Dómarinn - 9

Lars þurfti ekki að flauta mikið og leyfði leiknum að ganga.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.