SKÝRSLAN: Víkingar með sterkan sigur í Eyjum.
Hvað réði úrslitum?
Fyrstu 30 mínúturnar hjá Víkingunum. Byrjuðu leikinn mikið betur en eftir fyrstu 30 var þetta nokkuð jafn leikur. Eyjamenn hefðu getað komið sér inn í þennan leik en það var eins og þeir vildu ekki skora.
Bestu leikmenn
1. Kristall Máni Ingason
Besti maður vallarins hjá Víkingunum og kórónaði frammistöðu sína með virkilega snyrtilegri stoðsendingu í 3. markinu.
2. Júlíus Magnússon
Fyrirliðinn var mjög góður í dag eins og alltaf. Þórður Ingason má líka fá smá pepp, mjög góður í dag.
Atvikið
Á 60 mínútu fær Andri Rúnar sendingu í gegn frá Telmo Castanheira. Andri Rúnar klárar þetta færi í svona 8 af hverjum 10 skiptum en klúðraði í dag.
Hvað þýða úrslitin?
Eyjamenn fara á botn deildarinnar en Víkingar fara upp í 2. sæti. Eyjamenn enn án sigurs í deildinni og Víkingarnir með 3 sigra í röð.
Vondur dagur
Færanýting ÍBV. Þeir fengu fullt af færum til að koma leiknum í 1-2 og þá hefði þetta orðið allt annar leikur. Andri Rúnar skorar svona 2-3 mörk á sínum degi en þetta var ekki hans dagur.
Dómarinn - 5
Eyjamenn í stúkunni hefðu 100% viljað falleinkunn en mér fannst þetta fín dómgæsla. Flautaði kannski full mikið og Sigurður Arnar hefði vel getað fengið seinna gula. Annars bara fínt.



