SKÝRSLAN: Dramatík og nóg af vafaatriðum í Vesturbænum
Hvað réði úrslitum?
Klaufalegur varnarleikur ÍA í jöfnunarmarki KR eftir aukaspyrnu sem var náttúrulega aldrei aukaspyrna réði úrslitum. Leikurinn sjálfur var mikil skemmtun og bæði lið áttu flotta kafla. Skagamenn áttu sinn besta leik frá því gegn Víkingum og sóknarleikurinn var virkilega góður. Varnarleikur KR var aftur á móti alls engin hátíð en gæðin fram á við voru nægilega mikil til að boltinn fór þrisvar í net gestanna í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Steinar Þorsteinsson
Frábær frammistaða hjá öllum af fremstu fjórum í liði ÍA. Steinar skoraði og lagði upp í dag og átti heilt yfir mjög góðan leik.
2. Eyþór Aron Wöhler
Eyþór vann vinnuna fyrir liðið frábærlega og skoraði auk þess tvö mörk. Atli Sigurjónsson og Gísli Laxdal gera einnig virkilega sterkt tilkall í að vera í þessu boxi.
Atvikið
Jöfnunarmarkið í uppbótartíma. Aron Kristófer með aukaspyrnu lengst utan af velli inná teiginn og Alex Davey verður fyrir því óláni að skora í eigið net. Takkarnir á Finni Tómasi fóru í andlitið á Árna Snæ sem blóðgaðist og lá eftir í nokkrar mínútur.
Hvað þýða úrslitin?
KR er núna ósigrað í sex deildarleikjum og ÍA nær í sitt annað stig síðan í 3. umferð. Frammistaða ÍA ætti að gefa liðinu meira en þetta stig gefur liðinu á töfluna. KR er áfram í fimmta sætinu og ÍA áfram í tíunda sætinu. Leikirnir eru núna orðnir tíu í röð þar sem ÍA hefur ekki tekist að vinna KR.
Vondur dagur
Það voru nokkrir sem áttu ekki sinn besta dag í dag. Finnur Tómas í hjarta varnarinnar hjá KR var einn þeirra og Johannes Vall í vinstri bakverðinum hjá ÍA. Ég hef séð talsvert marga leiki hjá Finni Tómasi og þetta var sennilega hans versti.
Dómarinn - 2
Mögulega versta frammistaða dómara á tímabilinu - þegar kom að stóru atvikunum. Steinar átti að fá víti, Atli átti að fá víti, Gísli sló í andlitið á Kennie í fyrsta markinu og Guðmundur var langt frá því að snerta Kristin þegar aukaspyrnan var dæmd í aðdraganda sjötta marksins.




