Fotbolti.net
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjudeild karla
Kórinn
Sól úti en við erum inni
HK
HK
3 - 1
Kórdrengir
Kórdrengir
Stefán Ingi Sigurðarson 46'1 - 0Ásgeir Marteinsson 56'2 - 02 - 158' Þórir Rafn ÞórissonStefán Ingi Sigurðarson 73'3 - 1Eiður Atli Rúnarsson 87'
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: HK með sannfærandi sigur í Kórnum

Hvað réði úrslitum?

Liðin voru að þreyfa á hvoru öðrum í fyrri hálfleik og það var frekar hægt en HK komu eins og annað lið inn í seinni og áttu sigurinn virkilega skilið. Vörn Kórdrengja leit hinsvegar í tímabilum frekar illa út.

Bestu leikmenn

1. Stefán Ingi Sigurðarson (HK)

Stefán leiddi línuna vel, skoraði 2 mörk og átti virkan þátt í þriðja. Vil sérstaklega minnast á seinna markið hans sem var frábært ef þið finnið það einhverstaðar mæli ég með að kíkja á.

2. Valgeir Valgeirsson (HK)

Valgeir sýndi af hverju hann er svona vel metinn. Hefði getað skorað eitt en var óeigingjarn og gaf boltann á Ásgeir sem skoraði. Átti svo bara mjög góðan leik sérstaklega í seinni síiðinn og mikil gæði.

Atvikið

Rauða spjaldið á Eið Atla Rúnarsson. Þetta var sérstakt atvik þar sem flestir virtust hafa misst af fyrra gula spjaldinu í stúkunni og skildu ekki alveg hvers vegna hann fór út af. Ég fékk síðan staðfestingu á því að þetta hafi verið allt rétt en samt spes.

Hvað þýða úrslitin?

HK lyftir sér upp í fyrsta sætið með 15 stig eftir 7 leiki. Það eru þó nóg af liðum stutt þar á eftir.

Kórdrengir eru ennþá í 7. sæti með 10 stig eftir 8 leiki

Vondur dagur

Allt Kórdrengja liðið fyrstu 10 mínúturnar af seinni hálfleiknum. :eir voru hálfsofandi og HK nýtti sér það og skoraði 2 mörk og gerði út um leikinn. Vörnin hjá Kórdrengjum leit sérstaklega illa út í marki nr. 2

Dómarinn - 8

Ekki óaðfinnanlegt en almennt mjög vel dæmdur leikur hjá Arnari og hans teymi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.