Fotbolti.net
Gunnar Bjartur Huginsson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
2 - 5
Fylkir
Fylkir
0 - 16' Nikulás Val Gunnarsson (víti)0 - 236' Mathias Laursen ChristensenKjartan Kári Halldórsson (víti) 48'1 - 21 - 349' Benedikt Daríus Garðarsson Kjartan Kári Halldórsson 55'1 - 471' Þórður Gunnar Hafþórsson1 - 578' Ómar Björn StefánssonLuke Morgan Conrad Rae 89'2 - 5
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Stórsigur Fylkis gegn Gróttu

Hvað réði úrslitum?

Færanýting á seinasta þriðjungi. Fylkismenn nýttu alla sína sénsa og eru enn og aftur að skora úr hornspyrnu.

Bestu leikmenn

1. Ólafur Kristófer Helgason

Frábær í kvöld. Varði fáranlega vel, en gerði sig sekan um smá mistök í öðru marki Gróttu, skipti þó engu máli.

2. Þórður Gunnar Hafþórsson

Hljóp endalaust upp og niður kantinn. Var ógnandi allan tímann og ekki skemmdi mark fyrir.

Atvikið

Þegar Kjartan Kári Halldórsson fékk að líta rauða spjaldið í kjölfar brots á Þórði Gunnari. Þetta var virkilega sérkennilegur dómur þar sem að gult spjald hefði dugað.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Fylkismenn séu komnir í efsta sæti Lengjudeildar karla. Grótta situr þó enn í öðru sæti,-.

Vondur dagur

Varnarlína Gróttu hreppir þennan titil þar sem að þeir fengu á sig fimm mörk. Þeir vilja gleyma þessum leik og hugsa líklegast bara upp, upp og áfram.

Dómarinn - 3

Skrýtin dómgæsla í kveld. Rauða spjaldið sem hann dæmdi var vægast sagt fáranlegur dómur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.