SKÝRSLAN: Keflavík lyftir sér í efri hlutann
Hvað réði úrslitum?
Eftir flotta byrjun Valsmanna fá þeir rautt spjald og vítaspyrnu dæmda á sig en stóðu sig vel fram að hlé.
Í síðari hálfleik voru Keflvíkingar bara grimmari og óheppnir að vinna ekki stærra en Frederik Schram má bera höfuð hátt eftir sína frammistöðu í marki Vals.
Bestu leikmenn
1. Adam Ægir Pálsson
Var ógnandi í liði Keflavíkur en það sem lyftir honum upp í mann leiksins var markið sem var einstaklega vel afgreitt og svo stoðsendingin í þriðja markinu.
Þrátt fyrir að skjóta aðeins á hann eftir leik þá var hann frábær í leiknum og hreinlega óheppinn að vera bara með eina af hvoru (mark og stoðsending)
2. Frederik Schram
Var langbesti leikmaður Vals í þessum leik. Varði eins og berserkur og bjargaði því að niðurlæging Vals væri ekki meiri en bara 0-3. Hélt Val inn í leiknum eins lengi og hann mögulega gat með frábærum vörslum.
Atvikið
Rauða spjaldið á Hedlund.
Valsarar voru ívið betri áður en Hedlund brýtur af sér og fær rautt spjald og gefur Keflavík víti.
Eftir annað mark Keflvíkinga virtist allt springa hjá Val og trúin fór svo það fær líka heiðursnefningu.
Hvað þýða úrslitin?
Keflavík lyftir sér upp í efri 6 og sitja nú þrem stigum á eftir Valsmönnum.
Valsmenn dragast aftur úr í toppbaráttunni um evrópusæti.
Vondur dagur
Sebastian Hedlund tekur þetta á sig í kvöld. Rautt spjald og skilur Valsmenn eftir einum færri.
Tryggvi Hrafn og Patrick Pedersen fá líka heiðursnefningu en þeir fundu sig alls ekki í kvöld.
Dómarinn - 6
Helgi Mikael Jónasson og hans teymi stóðu sig með prýði. Einhver örfá atriði sem hægt væri kannski að pikka út en heilt yfir flott frammistaða.




