SKÝRSLAN: Leiknismenn slátruðu Stjörnumönnum í fyrri hálfleik
Hvað réði úrslitum?
Leiknir spilaði frábærlega og uppskar sanngjarna 3-0 forystu í hálfleik, lokuðuð svo leiknum fagmannlega í seinni hálfleik þrátt fyrir áhlaup Stjörnunnar.
Bestu leikmenn
1. Bjarki Aðalsteinsson (Leiknir)
Bjarki var stórkostlegur í dag, skorar fyrsta mark leiksins og gjörsamlega læsir svo marki Leiknismanna í seinni hálfleik, blokkaði hvert skotið á fætur öðru.
2. Mikkel Jakobsen (Leiknir)
Geggjaður í dag á vinstri kantinum, lagði upp fyrstu tvö mörkin og var alltaf að valda usla.
Atvikið
Hendin á Adolf sem Ívar Orri dæmdi, jöfnunarmark hefði komið sér vel fyrir Stjörnuna og mögulega breytt gangi leiksins en ekki fékk það að telja.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan nær ekki að koma sér uppfyrir KA og eru því í 4. sæti en Leiknismenn koma sér upp úr fallsæti.
Vondur dagur
Óli Valur fannst mér vera í vandræðum miðað við hversu ofboðslega góður hann er, var of langt frá Jakobsen þegar hann leggur upp annað markið, einnig var Björn Berg í miklum vandræðum í vörn Stjörnumanna, hægt að taka miklu fleiri fyrir en dálkurinn ræður varla við það!
Dómarinn - 10
Stórkostlega dæmdur leikur hjá teyminu, ekki eitt feilspor og stóra atriðið með jöfnunarmark Stjörnunnar spot on!




