Fotbolti.net
Besta deildin
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Besta-deild karla
Framvöllur - Úlfarsárdal
Fullkomnar aðstæður fyrir fótbolta, logn og frábær blautur völlur.
Fram
Fram
1 - 0
FH
FH
Tiago Manuel Da Silva Fernandes 50'1 - 0
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Fram á nýjum heimavelli í Úlfársárdal

Hvað réði úrslitum?

Gæðaleysi í sóknarleik FH eða góður varnarleikur Fram? Fyrri hálfleikurinn var fjörugur og voru færi á báða bóga. Framarar komust yfir snemma í síðari hálfleik og eftir það lagðist liðið til baka og FH hélt meira í boltann án þess að ná að skapa sér neitt en varnarleikur Fram var gríðarlega sterkur þegar FH dældi boltanum inn á teig Framara.

Bestu leikmenn

1. Brynjar Gauti Guðjónsson (Fram)

Frumraun í Úlfarsárdal og var maður leiksins. Var með Matthías Villhjálmsson í vasanum allan leikinn og skallaði ég veit ekki hvað marga bolta í burtu úr teig Fram og var frábær aftast hjá Fram í kvöld.

2. Tiago Fernandes (Fram)

Tiago Fernandes var sprækur í liði Fram í kvöld og ógnaði að marki FH í fyrri hálfleik. Skoraði síðan sigurmark Framara snemma í síðari hálfleik þegar hann setti boltann örugglega í netið eftir sendingu frá Má Ægissyni.

Atvikið

Sigurmarkið Fram en það komu einhverjir fimm leikmenn Fram að því marki sem endaði með því að Már Ægisson lagði boltann út á Tiago Fernandes sem lagði boltann í netið. Frábært mark í alla staði.

Hvað þýða úrslitin?

Liðin gera sæta skipti. Fram kemur sér upp í áttunda sæti deildarinnar og er liðið komið með 13.stig en FH er í því 9 með tíu stig og aðeins tveimur stigum frá fallsæti

Vondur dagur

Matthías Villhjálmsson - Brynjar Gauti var með Matta í vasanum allan leikinn í kvöld og Matti náði lítið að koma sér í alvöru færi.

Dómarinn - 8

Egill Arnar og hans menn dæmdu þennan leik gríðarlega vel og var ekkert vesen á þeirra vakt í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.