Fotbolti.net
Besta deildin
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Besta-deild karla
Kaplakrikavöllur
Völlurinn frábær. Þungskýjað og smávegis vindur.
FH
FH
0 - 0
Breiðablik
Breiðablik
9' Davíð Ingvarsson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 1507
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Færin fóru forgörðum

Hvað réði úrslitum?

Leikmenn einfaldlega náðu ekki að koma boltanum yfir marklínuna og inn í netið. Því fór sem fór. 0 - 0. En ekki vantaði færin báðum megin á vellinum.

Bestu leikmenn

1. Anton Ari Einarsson

Markmaður Blika var frábær og varði nokkrum sinnum virkilega vel og hélt sínum mönnum inn í leiknum

2. Höskuldur Gunnlaugsson

Var frábær á vellinum og stýrði sínum mönnum frábærlega.

Atvikið

Davíð Ingvarsson fékk beint rautt spjald á 9. mínútu leiksins fyrir ansi groddarlega tæklingu á Ástbjörn Þórðarson. Verðskuldað rautt.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar eru enn í efsta sæti og auka forskot sitt á Víkinga sem eiga leik til góða. FH fór upp um eitt sæti og yfir ÍBV í 9. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og ÍBV en aðeins skárri markatölu.

Vondur dagur

Davíð Ingvarsson átti augljóslega ekki góðan leik. Fær verðskuldað rautt mjög snemma leiks sem gerði Blikum erfitt fyrir.

Sóknarlína FH var svo ekki á skotskónum rétt reimuðum í dag.

Dómarinn - 5

Sigurður Hjörtur Þrastarson gerði virkilega vel í að dæma rauða spjaldið en eftir það var eins og hann væri ekki alveg viss um hvaða línu hann ætlaði sér að hafa í leiknum. Fullt af gulum spjöldum sem hefði alveg mátt sleppa. Síðan hefði Guðmundur Kristjánsson átt að fá sitt seinna gula fyrir brot á Jasoni Daða en það varð ekki.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.