Fotbolti.net
Besta deildin
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild karla
HS Orku völlurinn
Keflavík
Keflavík
1 - 3
KA
KA
Adam Árni Róbertsson 8'1 - 0Sindri Kristinn Ólafsson 11'1 - 175' Rodrigo Gomes Mateo1 - 293' Jakob Snær Árnason1 - 394' Nökkvi Þeyr Þórisson
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: KA sigur í uppbótartíma

Hvað réði úrslitum?

Seigla KA réði úrslitum. Keflvíkingar settu gríðarlega orku í þennan leik og hefðu hæglega getað stolið sigrinum en sprungu í uppbótartíma og KA nýttu sér það og settu 2 mörk á þá.

Bestu leikmenn

1. Kristijan Jajalo

Varði stórkostlega á köflum í síðari hálfleik og meðal annars einn á móti markmanni í tvígang. Stór ástæða þess að KA vann þennan leik.

2. Nökkvi Þeyr Þórisson

Skoraði þriðja mark KA og lagði upp jöfnunarmarkið. Ef það hefði ekki verið fyrir risa vörslur Jajalo í stöðunni 1-1 þá hefði Nökkvi Þeyr verið maður leiksins.

Atvikið

Rauða spjaldið á Sindra Kristinn.
Ásgeir Sigurgeirsson að sleppa í gegn og Sindri Kristinn kemur út á móti og rekur fótinn út rétt fyrir utan teig þegar Ásgeir er að taka skrefið til hliðar og fellur. Rautt spjald hárréttur dómur.

Hvað þýða úrslitin?

KA halda pressu á Víkingum og eru einu stigi á eftir þeim í 3.sæti deildarinnar en Víkingar eiga þó leik til góða.
Keflvíkingar halda enn 6.sætinu á markatölu en það munar ekki miklu í KR í 7.sætið sem hafa jafn mörg stig.

Vondur dagur

Sindri Kristinn Ólafsson markvörður Keflavíkur tekur að sér þennan dálk.
Patrik Johannesen fyrir framan markið fær líka shout en SIndri tekur þetta.

Dómarinn - 5

Hárrétt rautt spjald en hefði sennilega getað rekið Nacho Heras af velli og gefið víti þegar hann virtist handleika boltann í fyrri hálfleik. Teymið var stundum að gefa vitlausum liðum innköst og annað en sleppi teyminu með 5.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.