SKÝRSLAN: HK lagði Gróttu í endurkomusigri
Hvað réði úrslitum?
HK lenti undir í leiknum en sýndi mikinn karakter í að koma til baka. Eftir jöfnunarmark HK sá maður í hvaða átt leikurinn var að þróast. HK-ingar sýndu mikla liðsheild að koma til baka og að hleypa Gróttu ekki aftur inn í leikinn.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Marteinsson
Ásgeir frábær í dag skoraði geggjað mark og átti stórhættulegar fyrirgjafir, það er góð og gild ástæða af hverju hann er kallaður seiðkarlinn í efri byggðum Kópavogs.
2. Stefán Ingi Sigurðarson
Stefán með gott mark í dag og er alltaf ógnandi. Verður mikill missir fyrir HK þegar hann fer út til Bandaríkjanna í skóla seinna í mánuðinum.
Atvikið
Jöfnunarmark Ásgeirs fyrir HK skipti sköpum í leiknum. Bæði var það afar fallegt og síðan vöknuðu HK-ingar við markið og stýrðu nánast leiknum eftir það.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að HK er í toppsæti deildarinnar á meðan Grótta heldur sér í 4. sæti.
Vondur dagur
Enginn í leiknum átti áberandi vondan dag. Það má kannski benda á í öðru marki HK þá var Júlí Karlsson í Stefáni en Stefán náði að ýta honum frekar auðveldlega af sér. Þjálfarar Gróttu voru ekki sáttir og vildu fá dæmt brot en að mínu mati var Stefán mun sterkari en Júlí.
Dómarinn - 6
Erlendur var Fínn í dag, þjálfarar Gróttu voru ekki sáttir með hann en ég sá engan áberandi lélegan dóm.



