Fotbolti.net
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir
Lengjudeild kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
4 - 1
Fjarðab/Höttur/Leiknir
Fjarðab/Höttur/Leiknir
Berglind Þrastardóttir 2'1 - 01 - 15' Linli TuRannveig Bjarnadóttir 15'2 - 1Rannveig Bjarnadóttir 45'3 - 1Telma Hjaltalín Þrastardóttir 83'4 - 1
Dómari: Sigurður Schram
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Ósigrandi FH-ingar á svakalegri siglingu

Hvað réði úrslitum?

FH spilaði rosalega flottan og góðan sóknarleik í dag og Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir áttu í vandræðum með að stoppa þær. FH hefðu hæglega getað skorað 2-3 mörk í viðbót.

Bestu leikmenn

1. Rannveig Bjarnadóttir

Átti mjög góðan leik, skoraði tvö mörk og átti nokkur skot á markið í viðbót sem hefðu vel getað endað í netinu. Var líka dugleg að vinna til baka þegar gestirnir beittu skyndisóknum.

2. Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir

Það koma alveg margar til greina enda spilaði FH liðið í heild mjög vel en vinstri bakvörðurinn var mjög góð í dag og átti stoðsendingu og margar flottar fyrirgjafir. Hún tók flest öll föst leikatriði FH sem gerðu Fjarðarbyggð/Hetti/Leikni erfitt fyrir.

Atvikið

Upphafsmínúturnar voru svakalegar í leiknum, Beerglind Þrastardóttir skorar eftir 2 mínútur eftir góða sókn FH og Fjarðarbyggð/Höttur/Leiknir eru varla búnar að taka miðju þegar Linli Tu jafnar, fyrstu mínúturnar voru rosalega opnar og þetta var eins og að horfa á tennis.

Hvað þýða úrslitin?

FH eru einar á toppnum með 3 stiga forskot og eiga leik til góða, þær eru á fljúgandi siglingu og hafa í síðustu þremur leikjum skorað 13 mörk og fengið á sig 1 svo allt virðist vera í toppmálum í Hafnarfirðinum.
Fjarðarbyggð/Höttur/Leiknir er í 5 sæti með 21 stig, 5 stigum frá 2. sætinu sem gefur þeim sæti í Bestu deildinni á næsta ári, það eru 9 stig niður í 6. sætið svo þær sigla nokkuð lygnan sjó um miðja deild.

Vondur dagur

Það vantaði upp á sóknarleikinn hjá Fjarðarbyggð/Hetti/Leikni í dag og eftir að FH komst yfir náðu þær lítið að skapa sér, þær reyndu að sækja hratt þegar þær unnu boltann en ákvarðana takan var ekki mjög góð.

Dómarinn - 7

Bara fínt og flott hjá Sigurði í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.