Fotbolti.net
Jón Ólafur Eiríksson
Lengjudeild karla
Olísvöllurinn
Blautur völlur, gola, 10 gráður
Vestri
Vestri
4 - 0
Þróttur V.
Þróttur V.
Ignacio Gil Echevarria 5'1 - 0Ignacio Gil Echevarria 8'2 - 0Silas Dylan Songani 41'Pétur Bjarnason 71'3 - 0Deniz Yaldir 83'4 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Áhorfendur: 230

SKÝRSLAN: Vestri vann Vogamenn

Hvað réði úrslitum?

Þróttur náði litlum undirbúningi fyrir leikinn eftir seinkun á flugi þeirra og mættu ískaldir í leikinn og Vestri skoraði tvö í byrjun. Heimamenn gáfu engin færi á sér þrátt fyrir að vera lengi manni færri og unnu að endingu afar sannfærandi sigur.

Bestu leikmenn

1. Deniz Yaldir

Hann var sá sem losaði Vestra undan pressunni eftir að þeir lentu manni færri. Fljótur að mæta upp og ógna í sóknarleiknum. Sem vinstri vængbakvörður gaf hann engin færi á sér auk þess sem hann skoraði og lagði upp.

2. Nacho Gil

Margir góðir í dag, Fall, Pétur og Friðrik til dæmis en Nacho skoraði fyrstu tvö mörkin og nánast kláraði leikinn áður en Þróttarar komust af stað.

Atvikið

Mpongo að sleppa einn í gegn en Aurelien Norest tæklar hann, mér sýndist hann ekki ná til boltans og Norest hefði verið í vandræðum sem aftasti varnarmaður. Út frá því verða deilur þar sem Silas slær sennilega til leikmanns Þróttar og uppskar rautt spjald.

Hvað þýða úrslitin?

Vestri fer upp fyrir Selfoss og kemst í efri hluta deildarinnar en Þróttur langt frá öruggu sæti.

Vondur dagur

Sóknarleikur Þróttara var hugmyndasnauður og gæðalítill. Þrátt fyrir að vera manni fleiri sköpuðu þeir sér engin færi að ráði og fannst manni sigurinn aldrei vera í hættu hjá Vestramönnum.

Dómarinn - 7

Ágætur löngum köflum, en sýndist hann gera mistök þegar Mpongo var að sleppa í gegn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.