SKÝRSLAN: Blikar gengu frá KR-ingum á 20 mínútum
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik hefur gríðarleg gæði og hraða fram á við sem KR-ingar náðu að halda vel í kefjum framan að enn eftir að Blikar ná að skora annað hrukku sóknarmenn Blika í gang og flóðgáttir opnuðust. Frábær sóknarleikur Blika síðustu 20 mínúturnar sem KR-ingar réðu ekkert við réðu úrslitum í dag.
Bestu leikmenn
1. Karítas Tómasdóttir
Rosalega er hún góð, þegar hún komst á spretinn var ekki nokkur leið að stoppa hana. Skoraði fysrtu tvö mörk leiksins og kom Blikunum í gang með 2. marki sínu.
2. Agla María Albertsdóttir
Ætla að gefa Öglu Marí þetta hún var án vafa einn besti leimaðurinn á vellinum í dag, hún er bara svo góð og getur búið til mikla hættu úr engu, skorar líka gott mark og á stoðsendinguna í 2. markinu.
Varamenn Blika þurfa samt að fá smá credit fyrir að koma rosalega sterkar inn á, 2 mörk og 2 stoðsendingar frá varamönnum Blika í dag.
Atvikið
Annað mark Blika sem Karítas Tómasdóttir skorar breytti leiknum roslega fram að því hafði leikurinn verið jafn og spennandi og KR-ingar ekkert verið ólíklegri en Blikar til að skora en eftir annað markið var bara eitt lið á vellinum og Blikar svoleiðis sundurspiluðu KR liðið.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar halda 2. sætinu og eru einu stigi á eftir Val sem er á toppnum en á þó leik til góða. KR-ingar sitja í 9. sæti einu stigi meira en Afturelding sem er á botninum.
Vondur dagur
Bergdís Fanney Einarsdóttir sem hafði verið lífleg í sóknarleik KR fór meidd af velli eftir 68. mínútur. Bergdís Fanney er lykilmaður í liði KR og það er mikilvægt fyrir KR að hún komist á völlinn sem allra fyrst.
Dómarinn - 7
Bara fínn leikur hjá dómaranum.



