SKÝRSLAN: Alls ekki mikið fyrir augað í Safamýrinni í kvöld
Hvað réði úrslitum?
Hvorugu liðinu tókst að skora sem gefur okkur 0-0 jafntefli. Það var hart barist inn á vellinum í Safamýrinni í kvöld en þessi leikur fer ekki í sögubækurnar þegar talað er um skemmtanagildi. Kórdrengir fengu þó einhver færi í síðari hálfleiknum til að klára leikinn en mistókst það.
Bestu leikmenn
1. Guðmann Þórisson (Kórdrengir)
Guðmann Þórisson var flottur aftast hjá Kórdrengjum og stýrði varnarleik liðsins og sá til þess að Fjölnismenn fengu lítið sem engin færi í kvöld.
2. Axel Freyr Harðarsson (Kórdrengir)
Axel var einn af líflegustu mönnum leiksins en það sem gerðist sóknarlega hjá Kórdrengjum þá átti hann þátt í öllum þeim sénsum sem Kórdrengir komu sér í
Atvikið
Sverrir Páll setti boltann í slánna í síðari hálfleik og það er atvikið. Fékk boltann inn á teig Fjölnis kemst aleinn á móti Sigurjóni Daða en setti boltann í slánna.
Hvað þýða úrslitin?
Kórdrengir komast upp í áttunda sæti deildarinnar og er liðið með 18.stig. Fjölnismenn sitja í því þriðja með 24.
Vondur dagur
Sóknarleikur Fjölnis var rosalega slakur í kvöld en liðið skapaði sér ekki eitt alvöru færi allar 90.mínúturnar í kvöld.
Dómarinn - 4
Gunnar Freyr fær falleinkun frá mér í kvöld. Dæmdi alltof oft á brot inn í teigum liðanna eftir smá barning manna á milli og hefði geta gefið Fatai Gbadamosi rautt spjald þegar hann tæklaði Júlíus Mar Júlíusson.



