SKÝRSLAN: Skjálfti í Grindavík eftir að Fylkir gaus mörkum yfir þá
Hvað réði úrslitum?
Grindavík var aðeins sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en eftir að Emil skorar þetta mark strax á 51. mínútu þá var bara eitt lið á vellinum og Fylkir valtaði yfir þá.
Bestu leikmenn
1. Emil Ásmundsson (Fylkir)
2 mörk og það seinna, vá!
2. Óskar Borgþórsson (Fylkir)
Kom inn á fyrir Emil og var búinn að leggja upp mark mínútu seinna, lagði svo annað mark upp og var virkilega líflegur heilt yfir.
Atvikið
Mark Emils Ásmundssonar verður ekki leikið eftir í langan tíma
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir styrkir stöðu sína og er núna 9 stig milli þeirra í 2.sæti og Fjölnis í 3. sæti
Grindavík er enn í 9. sæti með 17 stig
Vondur dagur
Varnarlína Grindavíkur í seinni hálfleik var eitt stórt gatasigti. Eins sterkir og þeir voru í þeim fyrri þá fór allur andinn úr þeim í þeim seinni.
Dómarinn - 8
Ekkert út á dómarateymið að setja. Þeir dæma víti sem var rétt svo dæma þeir 2 mörk af vegna rangstæðu og miðað við viðbrögð leikmanna var það líkast til rétt líka.



