Fotbolti.net
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeild kvenna
Würth völlurinn
Geggjað veður og völlurinn lítur vel út
Fylkir
Fylkir
0 - 0
Fjarðab/Höttur/Leiknir
Fjarðab/Höttur/Leiknir
Dómari: Uchechukwu Michael Eze
Áhorfendur: 235

SKÝRSLAN: Hefur þetta einhvern tímann gerst áður á Íslandi?

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið fengu sín færi en færanýtingin var svo sannarlega ekki sérstök. Markverðir beggja liða voru líka í stuði í dag og eiga hrós skilið fyrir sína frammistöðu. Boltinn vildi bara ekki inn.

Bestu leikmenn

1. Signý Lára Bjarnadóttir (Fylkir)

Var með markahæsta leikmann deildarinnar í góðri gæslu. Virkilega flottur leikur hjá henni í hjarta varnarinnar.

2. Sunneva Helgadóttir (Fylkir)

Spilaði lengst af í hægri bakverði og átti mjög góðan leik, sérstaklega varnarlega. Átti eina rosalega tæklingu í seinni hálfleiknum. Markverðir beggja liða gerðu einnig tilkall hérna.

Atvikið

Þegar Guðrún Karítas átti skot í skeytin. Það hefði verið ótrúlegt mark ef boltinn hefði farið inn.

Hvað þýða úrslitin?

Þýða það að hvorugt þessara liða er að fara upp og hvorugt þeirra er að fara niður - það er hægt að bóka það. Þau verða áfram í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

Það sem er athyglisverðast við þennan leik er að Fylkir var að gera sitt sjöunda jafntefli í röð en það er spurning hvort það sé Íslandsmet fyrir marga jafnteflisleiki í röð?

Vondur dagur

Linli Tu var ekki alveg á deginum sínum fyrir framan markið. Það eru miklar kröfur gerðar til hennar eftir sumarið sem hún er búin að eiga. Hún hefði klárlega getað skorað í dag, en hún var ekki alveg á sínum besta degi.

Dómarinn - 7,5

Nokkur smávægileg mistök hér og þar en heilt yfir var þetta mjög vel dæmdur leikur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.